Óli Halldórsson hefur dregið framboð sitt sem oddviti VG í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum til baka af persónulegum ástæðum. Oddviti í hans stað verður þingflokksformaðurinn Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
Óli sigraði í forvali Vinstri grænna í vor, en sendi frá sér svohljóðandi tilkynningu í dag:
„Ég hef af persónulegum ástæðum ákveðið að víkja frá áformum um að leiða framboð VG í Norðausturkjördæmi til Alþingiskosninga komandi haust.
Alvarleg veikindi hafa komið upp hjá eiginkonu minni, sem haft hafa í för með sér ófyrirséðar áskoranir. Í forystuhlutverk í pólitík landsmála fer maður ekki til smárra verka eða af hálfum hug. Ég tek því umboði sem mér var veitt í forvali VG af mikilli auðmýkt og virðingu en óska vinsamlegast eftir því að mínum aðstæðum verði sýndur skilningur. Með bjartsýni á batnandi heilsu og jafnvægi fjölskyldu minnar með tímanum mun ég vonandi hafa aðstæður til vaxandi þátttöku fyrir VG á ný.
Ég bið fólk vinsamlegast að virða að við fjölskyldan munum ekki ræða þessi mál frekar í símtölum, með skilaboðum eða öðrum hætti að svo stöddu. Stjórn kjördæmisráðs gerir eftirfarandi tillögu að breytingu á röðun þriggja efstu á lista VG í Norðausturkjördæmi. Breytingartillagan verður lögð fyrir fund í kjördæmisráði eftir helgi.“
Á vef VG segir að breytingartillaga stjórnar kjördæmisráðsins sé svohljóðandi fyrir þrjú efstu sæti listans:
- Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
- Jódís Skúladóttir
- Óli Halldórsson