„Ég sem íbúi í Grafarvogi finn fyrir mikilli óánægju í mínu hverfi“

Alexander Witold Bogdanski, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.

Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um sveigjanlegri opnunartíma og fleytitíð var vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi borgarstjórnar í gærkvöldi.

Tillagan gerir ráð fyrir að minnka álagstoppa í umferð með því að auka sveigjanleika opnunartíma stofnana og fyrirtækja borgarinnar og stuðla jafnframt að því að aðrir atvinnurekendur geri slíkt hið sama.

Alexander Witold Bogdanski, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og flutningsmaður tillögunnar, kveðst ánægður að vel hafi verið tekið í tillöguna enda brýnt að leita lausna á umferðarmálum.  

„Ég sem íbúi í Grafarvogi finn fyrir mikilli óánægju í mínu hverfi vegna mikillar umferðar. Og áður var ég um fjörutíu mínútur að komast í og úr vinnu, bæði á morgnana og síðdegis, samtals áttatíu mínútur daglega,“ segir Alexander Witold og bætir við að hann þekki þessa hugmyndafræði af eigin raun enda hafi hann fengið leyfi frá atvinnurekanda sínum til að mæta klukkan sjö að morgni og fara fyrr úr vinnu svo hann hefði tök á að sækja börnin sín úr leikskólanum.

Í greinargerð með tillögunni segir að skipulagshalli sé „mikill í borginni sem sést hvað best á því hvað umferð er þung inn í miðborgina að morgni og út úr henni síðdegis. Langar raðir bíla fylla aðra akrein stofnvega á meðan hin akreinin er nær tóm. Álagstoppar eru sífellt erfiðari og er nauðsynlegt að dreifa álagi.“

Í bókun Sjálfstæðisflokksins við málið segir: 

„Aukinn sveigjanleiki í opnunartíma stofnana og fyrirtækja borgarinnar með það fyrir augum að minnka álagstoppa í umferð, er ein af þeim aðgerðum sem hægt er að framkvæma með tiltölulega litlum tilkostnaði á stuttum tíma. Skipulagshalli er gríðarmikill í borginni sem sést hvað best á því hvað umferð er þung inn í miðborgina að morgni og út úr henni síðdegis. Langar raðir bíla fylla aðra akrein stofnvega á meðan hin akreinin er nær tóm. Álagstoppar eru því sífellt erfiðari og er nauðsynlegt að dreifa álagi eins og unnt er. Hugmyndir um aukinn sveigjanleika hafa verið lengi í umræðunni en ekki hefur tekist að ná þeim árangri sem stefnt var að.“