Enginn smitast undir fertugu hér á landi — enginn alvarlega veikur

Á stöðufundi samhæfingarstöðvar almannavarna í morgun kom fram að í gær voru fjögur tilfelli af COVID-19 sjúkdómum greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Einnig kom upp eitt vafasýni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum.

Allir einstaklingarnir eru á aldrinum 44-67 ára. Enginn er alvarlega veikur.

Öll tengjast skíðasvæðunum á Ítalíu (Trentino) og Austurríki (Ischgl).

Nú hafa því samtals 37 einstaklingar greinst hér á landi með Kórónaveiruna á einni viku, en fyrsta staðfesta tilfellið kom upp í hádeginu sl. föstudag.

Tæplega 400 einstaklingar eru í sóttkví. Samtals 368 sýni hafa verið greind vegna COVID-19 á sýkla- og veirufræðideild Landspítala.

Sóttvarnalæknir og Almannavarnir hafa boðað til reglulegs upplýsingafundar vegna Kórónaveirunnar kl. 14 í dag.