Klukkan 5:30 í morgun hófst áköf smáskjálftavirkni norðaustan við Sýlingarfell. Um 30 mínútum síðar hófst eldgos á sömu slóðum.
Fyrstu mínúturnar lengdist sprungan bæði til norðurs og suðurs.
Út frá fyrstu fréttum úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar er gosið á sömu slóðum og gaus 18. desember. Sprungan er um 3 km löng, liggur frá Sundhnúk í suðri til austurenda Stóra-Skógfells. Hraun rennur mestmegnis til vesturs á þessu stigi. Hraunflæði virðist aðeins minna en í byrjun gossins 18. desember.
Gosstrókarnir ná um 50-80 m hæð og gosmökkurinn stígur upp í um 3 km hæð, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.























