Enn lýst yfir óvissustigi: Nú vegna gróðurelda

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra á Vesturlandi, Höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi hafa ákveðið að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Svæðið sem um er að ræða nær frá Eyjafjöllum að sunnanverðu Snæfellsnesi.

Íslendingar ættu að vera orðnir öllu vanir þegar kemur að slíkum tilkynningum frá almannavörnum, þar sem eldgos, jarðskjálftar, skriður, snjóflóð og heimsfaraldur hafa orðið tilefni slíkra tíðinda á undanförnum misserum.

„Þessi ákvörðun er byggð á því að lítið hefur rignt þessu svæði undanfarið og veðurspá næstu daga sýnir heldur ekki neina úrkomu af ráði.

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila og almennings.

Almenningur er hvattur til að sýna aðgát með opin eld á þessum svæðum og öðrum þar sem gróður er þurr. Það þarf ekki mikinn neista til þess að af verði stórt bál.

Ef fólk verður vart við gróðurelda á strax að hringja í 112,“ segir þar ennfremur.

Á heimasíðu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra er hægt að nálgast upplýsingar um ýmsar varnir til að draga úr hættu af gróðureldum.