Er umræðan um mansal bara stormur í vatnsglasi?

Brynjar Níelsson fv alþingismaður.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir umræðu um mansal hér á landi og spyr hvort hún sé í reynd stormur í vatnsglasi og hluti af pólitískri hugmyndafræði að halda henni sem mest á lofti.

Tilefnið var fyrirspurn Fjölnis Sæmundssonar, lögreglufulltrúa og varaþingmanns Vinstri grænna, til dómsmálaráðherra á þingi í dag um mansal og aðgerðir til að stemma stigu við því.

Fjölnir Sæmundsson lögreglufulltrúi og varaþingmaður Vinstri grænna.

„Þótt fulltrúar launþega og femínistahreyfinga trúi því að erlendir verkamenn og kynlífsseljendur séu meira og minna þolendur mansals er það ekki endilega raunin. Og það verður heldur ekki að staðreynd þótt slíkar fullyrðingar komi fram í fjölmiðlum,“ segir Brynjar í færslu á fésbókinni.

„Flest þessi mansalsmál, ef ekki öll, sem hafa verið til umræðu í fjölmiðlum ýmist koma ekki til rannsóknar lögreglu eða eru felld niður eftir rannsókn. Ég vil benda varaþingmanninum á að mansal er bara eins og önnur hegningarlagabrot og rannsakað af lögreglu og ákært ef brot er talið sannað. Gæti verið að þessi mansalsumræða sé bara stormur í vatnsglasi og hluti af pólitískri hugmyndafræði að halda henni sem mest á lofti?“ segir Brynjar ennfremur.

Brynjar Níelsson veltir fyrir sér hvort umræðan um mansal sé hluti af pólitískri hugmyndafræði.