Fasteignamat hækkar mest á Vestfjörðum: Fiskeldið gjörbreytt öllu

Flateyri við Önundarfjörð. / Facebooksíða Vestfjarða.

Fasteignamat hækkar hvergi meira en á Vestfjörðum, kemur í ljós í Fasteignamati sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur birt.

„Þetta eru góðar fréttir og endurspegla uppbyggingu í atvinnulífi þar vestra sem hækkar fasteignaverð. Fiskeldi hefur gjörbreytt möguleikum fólks til lífs, uppbyggingar og búsetu á Vestfjörðum,“ segir Runólfur Ágústsson frumkvöðull og fv. rektor.

Hann kemur ennfremur með athyglisverðan vinkil á þá þróun sem orðið hefur á byggð í fjórðungnum:

„Á sínum tíma misstu Vestfirðingar mest af fiskveiðiréttindum sínum, nú tala margir fyrir því að taka fiskeldisréttinn af þeim líka. Þeir hinir sömu ættu að hafa í huga að með slíku væri verið að taka atvinnu og lífsbjörg frá íbúum Vestfjarða og leggja fjórðunginn í eyði!“