Fjöldi ríkja hafa í kjölfar frétta af ásökununum á hendur starfsmanna Palestínuflóttamannahjálpar Sameinu þjóðanna, UNRWA, tilkynnt að þau muni fresta greiðslu framlaga til stofnunarinnar. Þau ríki sem tilkynnt hafa um einhvers konar frestun framlaga eru, auk framkvæmdastjórnar Evrópusambandins; Bandaríkin, Bretland, Þýskaland, Ítalía, Ástralía, Finnland, Kanada, Holland, Eistland, Lettland, Litháen, Japan, Austurríki og Rúmenía, auk Íslands, Danmerkur sem hyggst fylgja afstöðu ESB í málinu og Svíþjóðar sem mun a.m.k. fresta greiðslu framlaga annarra en kjarnaframlaga.
Þetta kemur fram í upplýsingum sem utanríkisráðuneytið hefur tekið saman, en Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra ákvað sem kunnugt er á föstudag að fresta greiðslu kjarnaframlags UNRWA, í kjölfar ásakana um að tólf starfsmenn stofnunarinnar hafi átt aðild að hryðjuverkaárás Hamas 7. október síðastliðinn, þar til samráð hefur verið haft við samstarfsríki og frekari skýringa leitað hjá stofnuninni.
Fram kemur í yfirlýsingu ráðuneytisins, að í framhaldinu hafi ráðuneytið verið í „virkum samskiptum“ við Norðurlöndin og önnur samstarfsríki um viðbrögð við málinu og sótt fund varaframkvæmdastjóra UNRWA í gær, mánudag. Þá hafi ráðherra rætt málið í ríkisstjórn í dag og muni enn fremur eiga fund sama efnis með utanríkismálanefnd Alþingis á morgun.
Á næstu dögum muni ráðuneytið halda áfram nánu samráði við Norðurlöndin og fleiri líkt þenkjandi ríki um framhald málsins. Fyrirhugað sé að áframhaldandi stuðningur við UNRWA verði, að því samráði loknu, metinn með hliðsjón af öllum fyrirliggjandi upplýsingum og aðstæðum.
Enn fremur var í morgun tilkynnt um ákvörðun utanríkisráðherra um að ganga frá samningum við Alþjóðabankann og Rauða krossinn um frekari framlög til Palestínu, en samtals nema árleg framlög samkvæmt þessum viðbótarsamningum yfir 80 m.kr. Framlagið til Rauða krossins á Íslandi mun styðja við starfsemi Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC) sem starfar með palestínska hálfmánanum á Gaza og veitir lífsnauðsynlega aðstoð. Samningurinn við Alþjóðabankann er til fimm ára og rennur framlagið í sjóð á vegum bankans sem styður við enduruppbyggingu og endurreisn innviða í Palestínu, einkum á Gaza.