Fjórir dómarar Landsréttar tímabundið settir til hliðar

Landsréttur.

Í tilefni af dómi Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Guðmundar Andra Ástráðssonar gegn Íslandi frá 12. mars síðastliðnum var á fundi dómara Landsréttar sama dag ákveðið að fresta öllum þinghöldum sem boðað hafði verið til í þessari viku. 

Frá og með mánudeginum 18. mars næstkomandi mun Landsréttur starfa samkvæmt breyttri dagskrá sem birt verður á heimasíðu réttarins, að því er segir í yfirlýsingu sem forseti réttarins, Hervör Þorvaldsdóttir hefur birt á vefsíðu réttarins.

Eftirtaldir dómarar Landsréttar munu sinna dómstörfum:

Aðalsteinn E. Jónasson

Davíð Þór Björgvinsson

Hervör Þorvaldsdóttir

Ingveldur Einarsdóttir

Jóhannes Sigurðsson

Kristbjörg Stephensen

Oddný Mjöll Arnardóttir

Ragnheiður Harðardóttir

Sigurður Tómas Magnússon

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson

Þorgeir Ingi Njálsson

Landsréttardómararnir Arnfríður Einarsdóttir, Ásmundur Helgason og Jón Finnbjörnsson munu að svo stöddu ekki taka þátt í dómstörfum.

Landsréttardómarinn Ragnheiður Bragadóttir er í námsleyfi frá 1. janúar til 30. júní 2019.