Vegna innanlandssmita og mögulegrar hópsýkingar á höfuðborgarsvæðinu hefur neyðarstjórn velferðarsviðs Reykjavíkurborgar gefið út tilmæli um heimsóknir í þjónustuíbúðir fyrir aldraða, á hjúkrunarheimili og íbúðakjarna/sambýli í húsnæði fyrir fatlað fólk.
Fólk sem hefur verið erlendis á EKKI að heimsækja íbúa í 14 daga eftir komu til landsins. Þetta gildir einnig þó ekki hafi greinst smit við sýnatöku á landamærum.
Fólk sem hefur umgengist einstaklinga með smit á EKKI að heimsækja íbúa.
Fólk sem finnur fyrir kvefi eða flensulíkum einkennum á EKKI að heimsækja íbúa.
Starfsfólk í þjónustuíbúðum fyrir aldraða, á hjúkrunarheimilum, íbúðakjörnum/sambýlum og heimaþjónustu fer eftir sömu tilmælum í starfi sínu.
Aðrir gestir geta heimsótt íbúa, en mikilvægt er að fyllstu varúðar sé gætt og samfélagssáttmáli hafður í heiðri.
Neyðarstjórn velferðarsviðs mun endurmeta stöðu mála þann 13. júlí nk, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.