Almenna leigufélagið lýsir því yfir að það muni draga til baka fyrirhugaðar hækkanir leigu sem áttu að koma til framkvæmda á næstu þremur mánuðum. Auk þess að vinna að breytingum á leigusamningum félagsins með það að markmiði að bjóða samninga til lengri tíma en þekkst hefur á almenna markaðnum, þar sem tryggt er húsnæðisöryggi og stöðugra leiguverð. Lengri leigusamningar verða kynntir sérstaklega í byrjun mars á þessu ári.
Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá VR og Almenna leigufélaginu nú síðdegis. Þar kemur fram að aðilar máls hafi átt uppbyggilegar umræður síðustu daga um framtíð íslensks leigumarkaðar.
„Leigumarkaðurinn hér á landi er enn smár í sniðum og var lengi skammtímalausn fyrir fólk þar til það gat komið sér upp eigin húsnæði. Á síðustu árum hefur hins vegar orðið viðhorfsbreyting sem kallar á nýja nálgun. Æ fleiri vilja sjá leigumarkaðinn sem raunhæfan valkost til lengri tíma með húsnæðisöryggi og verðstöðugleika,“ segir í yfirlýsingunni.
„Hækkun á leigu íbúðarhúsnæðis varð til þess að VR og Almenna leigufélagið ræða nú hvernig hægt er að tryggja betur stöðu leigjenda.
Ljóst að breytinga er þörf. Háir vextir þrýsta á leiguverð, hvort sem er í félagslega kerfinu eða á hinum almenna markaði. Þegar við bætist óstöðugt lóðaframboð og hár kostnaður við byggingaframkvæmdir dregur úr leiguframboði á viðráðanlegu verði fyrir hinn almenna launamann.
Íslenskir lífeyrissjóðir hafa ekki tekið virkan þátt í leigumarkaði á Íslandi þrátt fyrir takmarkaða fjárfestingarmöguleika innanlands síðustu ár. Þátttaka lífeyrissjóða og annarra langtímafjárfesta í fjármögnun leigufélaga gæti skapað grundvöll fyrir lægri leigu, stöðugra leiguumhverfi og auknu húsnæðisöryggi leigjenda. Það er báðum aðilum til hagsbóta – leigjendum og leigusölum – að sterkir innlendir fjárfestar komi að uppbyggingu íslensks leigumarkaðar með langtímahagsmuni leigjenda að leiðarljósi,“ segir í yfirlýsingunni.