Ný könnun MMR sýnir töluverða fylgisaukningu Framsóknarflokksins og mælist Framsókn nú næststærsti flokkurinn, þegar hálfur þriðji mánuður er til kosninga.
„Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,4%, tæplega tveimur prósentustigum lægra en í síðustu fylgismælingu MMR sem lögð var fyrir dagana 4. – 14. júní. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,3%, rúmlega þremur prósentustigum hærra en í síðustu könnun en fylgi Pírata mældist nú 12,2%, prósentustigi minna en við síðustu könnun. Þá jókst fylgi Viðreisnar um rúmt prósentustig og mældist nú 9,1% en fylgi annarra flokka mældist nær óbreytt frá síðustu mælingu,“ segir á vef MMR.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 54,9% og jókst um rúmt prósentustig frá síðustu könnun, þar sem stuðningur mældist 53,7%.
- Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,4% og mældist 27,0% í síðustu könnun.
- Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,3% og mældist 8,8% í síðustu könnun.
- Fylgi Pírata mældist nú 12,2% og mældist 13,1% í síðustu könnun.
- Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,9% og mældist 12,4% í síðustu könnun.
- Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,6% og mældist 11,2% í síðustu könnun.
- Fylgi Viðreisnar mældist nú 9,1% og mældist 7,8% í síðustu könnun.
- Fylgi Miðflokksins mældist nú 6,6% og mældist 7,3% í síðustu könnun.
- Fylgi Flokks fólksins mældist nú 5,5% og mældist 5,5% í síðustu könnun.
- Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 5,3% og mældist 5,3% í síðustu könnun.
- Stuðningur við aðra mældist 1,2% samanlagt.