Fv. ráðherra, þingmaður og leikhússtjóri vilja stýra Ríkiskaupum

Fjármála- og efnahagsráðuneytið auglýsti á dögunum laust til umsóknar stöðu forstjóra Ríkiskaupa. Umsóknarfrestur rann út 11. maí og sóttu 32 um.

Forstjórinn þarf að hafa framtíðarsýn fyrir rekstur og þjónustu ríkisins og frumkvæði og metnað til að hrinda verkefnum í framkvæmd. Viðkomandi mun taka virkan þátt í umbreytingarferli og innleiðingu aðgerða þvert á stofnanir ríkisins ásamt því að stýra stofnuninni og bera ábyrgð á rekstri hennar, þjónustu og árangri, að því er segir á vefsíðu ráðuneytisins.

Fjármála- og efnahagsráðherra skipar forstjóra Ríkiskaupa til fimm ára.

Meðal umsækjenda um stöðuna eru Björgvin G. Sigurðsson fv. viðskiptaráðherra, Ari Matthíasson fv. Þjóðleikhússtjóri og Höskuldur Þórhallsson fv. alþingismaður.

Eftirfarandi sóttu um stöðuna:

NafnStarfsheiti
Ari Matthíasson                Fyrrv. Þjóðleikhússtjóri
Björgvin Guðni Sigurðsson      Framkvæmdastjóri
Björgvin Víkingsson            Head of supply chain management
Björn Hafsteinn Halldórsson    Framkvæmdastjóri
Björn Óli Ö Hauksson           Verkfræðingur
Dagmar Sigurðardóttir          Sviðsstjóri 
Einar Birkir Einarsson         Sérfræðingur
Elvar Steinn Þorkelsson        Framkvæmdastjóri
Erling Tómasson                Fjármálastjóri
Eyjólfur Vilberg Gunnarsson    Forstöðumaður
Guðmundur I Bergþórsson        Sérfræðingur
Guðrún Pálsdóttir              Fjármálastjóri
Helgi Steinar Gunnlaugsson     M Sc. í alþjóðasamskiptum
Hildur Georgsdóttir            Lögmaður
Hildur Ragnars                 Framkvæmdastjóri
Hlynur Atli Sigurðsson         Framkvæmdastjóri 
Höskuldur Þór Þórhallsson      Lögmaður
Ingólfur Þórisson              Framkvæmdastjóri
Jóhann Jóhannsson              Forstöðumaður 
Jón Axel Pétursson             Framkvæmdastjóri
Jón Garðar Jörundsson          Framkvæmdastjóri
Ragnar Davíðsson               Sviðstjóri 
Reynir Jónsson                 Sérfræðingur
Sigurður Erlingsson            framkvæmdastjóri 
Sólmundur Már Jónsson          Aðstoðarforstjóri
Styrkár Jafet Hendriksson      Sérfræðingur
Sæbjörg María Erlingsdóttir    Framkvæmdarstjóri
Sæunn Björk Þorkelsdóttir      Forstöðumaður
Tryggvi Harðarson              Verkfræðingur
Valdimar Björnsson             Fjármálastjóri
Þórður Bjarnason               Viðskiptafræðingur
Þórhallur Hákonarson           Fjármálastjóri