„Íbúi á hjúkrunarheimilinu Bergi í Bolungarvík lést í gær úr Covid-19. Tveir eru sýktir af Covid og þrír heimilismenn í einangrun og búið að taka sýni. Fimm íbúar eru í sóttkví án einkenna.“
Þetta segir í tilkynningu frá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
Meirihluti fastra starfsmanna á hjúkrunarheimilinu eru í einangrun, þar af fimm með staðfest smit.
„Aðrir fastir starfsmenn utan þriggja eru í sóttkví og er heimilinu því sinnt nær eingöngu af fólki úr bakvarðasveit eða öðrum deildum stofnunarinnar. Liðsafli hefur þegar borist úr bakvarðasveit og von er á fleirum með þyrlu Landhelgisgæslunnar seinna í dag ef veður leyfir.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða vottar aðstandendum samúð. Starfmönnum og heimilisfólki óskum við skjóts bata og samfélaginu þökkum við aðstoð og velvilja. Einnig þökkum við fólki sem boðist hefur til starfa á stofnuninni sem hluti af bakvarðasveit,“ segir þar ennfremur.
Þar með er ljóst, að sex eru látnir hér á landi af völdum Kórónuveirunnar.