Gríðarleg tækifæri að við hættum að kaupa orku af öðrum fyrir samgöngur

Bjarni Benediktsson hættir brátt sem fjármálaráðherra / Viljinn: Rúnar Gunnarsson.

„Ég lít ekki á þetta sem gríðarlega ógn. Ég horfi á það sem gríðarleg tækifæri fyrir samfélagið okkar, að við hættum að kaupa orku af öðrum þjóðum til að keyra samgöngur á Íslandi,“ sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, á Alþingi í dag þegar hann svaraði fyrirspurn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, um stuðning ríkisstjórnarinnar við borgarlínuna og aukna gjaldtöku á ökumenn á höfuðborgarsvæðinu.

Vísaði Sigmundur Davíð til þess að áform væri uppi um framkvæmdir í samgöngumálum og nýja gjaldtöku, nýja skattlagningu til að standa straum af þeim áformum.

„Ekki hefur gefist svigrúm til að kynna þetta fyrir þingmönnum en það virðist vera að þetta eigi að fela í sér nýja gjaldtöku fyrir það eitt að fara um vegi borgarinnar þar sem fólk keyrir um göturnar sem það er þegar búið að borga með sköttunum sínum á bílunum sem það hefur þegar borgað og greitt hin ýmsu gjöld af til ríkisins og notar eldsneytið sem það hefur keypt með hinum fjölbreytilegustu gjöldum sem eru lögð á eldsneyti til að standa straum af framkvæmdum í samgöngumálum.“ sagði Sigmundur Davíð.

Bjarni sagði í svari sínu að málið sé að stjórnvöld séu nauðbeygð til að gjörbreyta allri gjaldtöku af ökutækjum, eldsneyti og samgöngum í landinu.

„Það er út af orkuskiptunum. Í fyrra gáfum við eftir 3 milljarða í virðisaukaskatti til að fá inn umhverfisvæna bíla. Við tökum engin vörugjöld af rafmagnsbílum. Við tökum engan virðisaukaskatt af rafmagnsbílnum ef hann er undir ákveðnu kostnaðarverði og við gefum mjög mikinn afslátt ef hann er dýr í innkaupum. Þessir bílar fara um göturnar án þess að leggja nokkuð til vegna þess að þeir fara aldrei á dæluna. Þeim er að fjölga og þeim er að fjölga hratt og þeim fjölgar næsthraðast í heiminum á Íslandi, umhverfisvænum bílum og rafmagnsbílum. Þetta kallar á algjörlega nýja hugsun um það hvernig við byggjum upp gjaldakerfið. Meðalaðflutningsgjald af innfluttum bíl hrapar hratt út af breytingum sem við höfum nú þegar innleitt.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins / Viljinn: Rúnar Gunnarsson.

Þannig að, já, ég sé fyrir mér að fólk muni í framtíðinni meira greiða fyrir notkun á vegakerfinu og það muni borga miklu minna fyrir að eignast bíl, komast yfir bíl, og það muni sjaldnar fara á dæluna og sjaldnar greiða eldsneytisgjöld. Við þurfum að innleiða algjörlega nýja hugsun,“ sagði Bjarni Benediktsson.

Hann vísaði aukinheldur til þess að tvær síðustu ríkisstjórnir hafi fengið áskorun frá öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu um að fara í samtal um að greiða betur fyrir almenningssamgöngum.

„Við höfum verið í því samtali og það eru engar fréttir í því. Um er að ræða nýjan samgönguás um höfuðborgarsvæðið þar sem við sjáum fyrir okkur að hægt verði að veita almenningssamgöngum forgang. Það þarf að reisa þessa vegi en þar geta líka hópferðabílar farið um, eins og ég sé þetta, leigubifreiðar og jafnvel fólk sem kemur sér saman í bíl, þ.e. þar sem eru kannski þrír eða fleiri í sama ökutækinu. Þetta ætti að greiða fyrir umferð. Aðalatriðið er að samkomulagið sem er í smíðum er um stórfellda uppbyggingu á samgöngum á höfuðborgarsvæðinu til að greiða fyrir umferð,“ sagði hann.