Gríðarlega mikilvægt að allir fari varlega: Delta-afbrigðið dreifist um landið

Fimm greindust með COVID-19 smit innanlands sl. sólarhring og voru þeir allir utan sóttkvíar, samkvæmt tilkynningu almannavarna. Þrír eru full bólusettir en tveir ekki bólusettir að fullu. Smitrakning stendur yfir og er líklegt að á annað hundrað manns munu fara í sóttkví vegna þessa.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir staðfestir við Viljann, að nýju smitin sem greinst hafi innanlands undanfarna daga séu að mestu af hinu indverska Delta-afbrigði sem talið er mun meira smitandi en önnur og hefur valdið snarfjölgun tilfella víða um heim að undanförnu.

Í tilkynningu almannavarna er bent á að ljóst sé að samfélagslegt smit sé hér á landi og því gríðarlega mikilvægt að allir fari varlega á næstu dögum og vikum, líka þeir sem eru bólusettir, því augljóst sé að þeir aðilar geti áfram smitast af COVID-19.

„Sérstaklega er mikilvægt að farið sé varlega í umgengni við viðkvæma einstaklinga sem gætu veikst alvarlega af COVID-19 jafnvel þó að þeir séu bólusettir.  Þau smit sem hafa komið upp undanfarna daga hafa tengingar við skemmtanalífið, stóra fjölskyldu- og vinaviðburði.  Almannavarnir hvetja alla til að halda áfram að passa upp á einstaklingsbundnar sóttvarnir og fara í sýnatöku við minnstu einkenni, bæði bólusettir einstaklingar og óbólusettir. 

Eins og áður þá er mikilvægt að  hafa rakningarappið í símanum. Appið getur hjálpað rakningarteyminu að rekja smit og má segja að það sé núna í lykilhlutverki,“ segir ennfremur í tilkynningunni.