Úrskurður kjörefndar sem Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu var falið að skipa að ósk dómsmálaráðuneytisins er gríðarlegt áfall fyrir lýðræðið í landinu, segir Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, en kæru hennar um ógildingu borgarstjórnarkosninga, sem fram fóru í Reykjavík hinn 26. maí 2018 hefur verið vísað frá.
Vigdís segir að samkvæmt 93. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, er kærufrestur sjö dagar frá því að lýst er úrslitum kosninga. Sérstök nefnd sem dómsmálaráðuneytið skipaði til að fjalla um kæruefnið hafi hafi vísað kærunni frá á þessu tæknilega atriði og sinni engu þeim alvarlegu lögbrotum sem Persónuvernd hafi upplýst um í frumkvæðisathugun sinni og úrskurðaði um með þessum ákvörðunarorðum:
„Vinnsla Reykjavíkurborgar og rannsakenda við Háskóla Íslands á persónuupplýsingum frá Þjóðskrá Íslands, sem fólst í að senda mismunandi skilaboð til ungra kjósenda fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí 2018, samrýmdist ekki lögum nr. 77/2000.
Vinnsla Reykjavíkurborgar á persónuupplýsingum frá Þjóðskrá Íslands, sem fólst í að senda skilaboð til kvenna 80 ára og eldri og erlendra ríkisborgara fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí 2018, samrýmdist ekki lögum nr. 77/2000. Vinnsla Þjóðskrár Íslands á persónuupplýsingum sem fól í sér afhendingu upplýsinga til Reykjavíkurborgar um kyn og ríkisfang erlendra ríkisborgara samrýmdist ekki lögum nr. 77/2000.“
Við þetta er Vigdís afar ósátt:
„Ekki verður komist að annari niðurstöðu en þeirri að heimilt sé að stunda kosningasvindl í lögbundnum kosningum, svo framarlega að það komist ekki upp innan umrædds sjö daga ákvæðis laganna.
Meirihlutinn ásamt borgarstjóra er rúinn trausti. Búið er að upplýsa um alvarleg lögbrot í aðdraganda kosninganna, og sé ég mér því ekki annað fært en að kæra úrskurð kærunefndarinnar til dómsmálaráðuneytisins, sbr. 3. mgr. 93. gr.
Með því tæmi ég endanlega allar kæruleiðir innanlands, með því tæmi ég allar kæruleiðir innanlands, eins og ég var búin að lofa Reykvíkingum og landsmönnum öllum,“ bætir Vigdís við.