„Fyrir þremur árum var ég í hópi fólks sem stóð andspænis þeirri þungu ákvörðun að láta leiðir skilja með Sjálfstæðisflokknum. Ástæðan var fyrst og fremst sú að okkur fannst að flokkurinn væri fastur í ákveðinni rörsýn. Útséð væri um að hann gæti haft forystu um að mæta þeim nýju áskorunum 21. aldar sem kalla á meiri þátttöku Íslands í fjölþjóðasamvinnu. Við fundum einfaldlega ekki umburðarlyndi gagnvart frjálslyndum skoðunum af því tagi. Það hvarflaði þó aldrei að mér að eftir þrjú ár ættum við eftir að horfa á gamla félaga berast á banaspjót vegna þeirra mála sem leiddu öðru fremur til þess að frjálslynt fólk víða af pólitíska litrófinu stofnaði Viðreisn. Við blasa ein grimmustu innanflokksátök sem sögur fara af í áratugi.“
Þannig hefst sannkallað uppgjör Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur við Sjálfstæðisflokkinn í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Eins og þjóð veit, var hún áður ráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þannig nánasti samstarfsmaður formannanna Geirs H. Haarde og síðar Bjarna Benediktssonar, en síðar sagði hún skilið við flokkinn, tók þátt í stofnun Viðreisnar ásamt fleiri sjálfstæðismönnum og gegnir nú þar formennsku.
Ritstjórar Morgunblaðsins lítillækka forystu flokksins
Þorgerður Katrín segir að ritstjórar Morgunblaðsins, Davíð Oddsson og Haraldur Johannessen, hafi farið fyrir þeirri fylkingu sem andvíg er innleiðingu þriðja orkupakkans. Þeir fullyrði að innleiðingin brjóti gegn stjórnarskrá og grafi undan fullveldi landsins. Þá staðhæfi þeir að þingmenn sem styðja málið eigi lítinn sem engan stuðning í röðum almennra flokksmanna og forystufólks í flokksfélögum.
„Athyglisvert er að ritstjórarnir hafa kappkostað að lítillækka ritara og varaformann Sjálfstæðisflokksins sem hafa verið öflugir talsmenn innleiðingar og alþjóðasamstarfs. Þær eru sagðar svo óskýrar í hugsun, ungar og óreyndar að engum hefði á árum áður dottið í hug að fela slíku fólki trúnaðarstörf af þessu tagi.
Þá spotta og hæða ritstjórarnir formann Sjálfstæðisflokksins með því að benda í sífellu á að hann hafi verið á móti málinu í byrjun en sé því nú fylgjandi – af óskiljanlegum ástæðum,“ segir hún.
Bjarni veit að það er ekki stuðningur í baklandinu
Þorgerður Katrín kveðst vita ástæðuna fyrir vandræðum Bjarna Benediktssonar í málinu:
„Ástæðuna fyrir skoðanaflökti formannsins sýnist mér leiða af stöðu hans í þverklofnum flokki. Í byrjun umræðunnar vissi hann að það var ekki stuðningur í baklandinu. Eftir framgöngu varaformanns, ritara og utanríkisráðherra hefur hann talið að nægjanlegur stuðningur væri kominn þannig að honum væri óhætt að tala eins og hjarta hans slær. Það virðist ekki hafa verið rétt stöðumat.
Eins og Björn Bjarnason hefur ítrekað bent á snúast spurningarnar um stjórnarskrá og fullveldi um EES-samninginn sjálfan en ekki þetta afmarkaða orkupakkamál. Þeir sem eru í forystu fyrir andstöðunni vita það mætavel. Þetta mál er notað eða réttara sagt misnotað markvisst til að ná lengra. Einmitt þess vegna eru átökin svona hatrömm.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins munu samþykkja innleiðinguna í ágústlok. En eftir stendur flokkur sem er klofinn í afstöðu til stærsta og þýðingarmesta fjölþjóðasamnings sem Ísland á aðild að. Þau átök munu standa um mörg ókomin ár. Ný tilefni verða fundin til að viðhalda átökunum um EES með tilheyrandi þrýstingi. Ólíklegt er að þingmenn Sjálfstæðisflokksins standist aftur slíkan þrýsting,“ bætir hún við.
Mynda þarf nýja kjölfestu í utanríkismálum
„Á síðustu öld var Sjálfstæðisflokkurinn óumdeilanlega kjölfestan þegar kom að utanríkispólitík landsins. Þetta eru því einhver mestu málefnalegu hamskipti sem orðið hafa í einum stjórnmálaflokki. Kjarni málsins er sá að þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa ekki og munu ekki á næstu árum hafa nægjanlegan stuðning í baklandinu til þess að geta borið ábyrgð í ríkisstjórn á framkvæmd EES-samningsins. Það sjá allir. Hvaða mál verður tekið í gíslingu næst?
Það er fullkomlega óásættanlegt að ríkisstjórn þurfi meira en tvö ár til að koma innleiðingu af þessu tagi í gegnum þingið. Ekki þurfi frestinn til að vinna málið betur heldur til að lægja innanflokksöldur. Hvorki þjóðin né atvinnulífið getur búið við slíkt fimbulfamb og óvissu. Til þess eru almannahagsmunir of miklir.
Markmiðið má heldur ekki einskorðast við það að verja það sem við höfum. Hitt er ekki síður mikilvægt að vera reiðubúin að takast á við nýjar áskoranir í fjölþjóðasamvinnu. Rétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn hafði burði til á síðustu öld.
Formaðurinn er í vandræðum. Afturhaldsöflin í Sjálfstæðisflokknum eru harður andstæðingur. Nú, líkt og fyrir þremur árum og allar götur síðan, standa þeir frjálslyndu í flokknum frammi fyrir því að þurfa að kyngja pólitísku erindi sínu til þess að friða baklandið í þverklofnum flokki – eða leita einfaldlega á önnur mið. Næstu kosningar þurfa að snúast um nauðsyn þess að á Alþingi myndist meirihluti sem getur tryggt nýja kjölfestu í utanríkismálum. Viðreisn mun leggja sitt af mörkum til að svo megi verða,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ennfremur.