Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur gefið út uppfærðar leiðbeiningar til framhalds- og háskóla, í ljósi nýrra tilmæla sóttvarnarlæknis um grímunotkun í staðnámi í framhalds- og háskólum á höfuðborgarsvæðinu.
Í leiðbeiningunum kemur fram að skylt sé fyrir nemendur, kennara og annað starfsfólk framhalds- og háskóla að nota grímur í skólabyggingum og í öllu skólastarfi. Ráðuneytið hefur í samstarfi við heilbrigðisráðuneytið tryggt framhaldsskólum aðgang að 20-25.000 grímum sem Landspítalinn annast útsendingu á í fyrramálið. Með þessu er verið að tryggja að staðnám sé að sem mestu leyti óbreytt.
Mat um grímunotkun í skólum utan höfuðborgarsvæðisins verður háð aðstæðum í hverju tilfelli fyrir sig, út frá aðstöðu hvers skóla og útbreiðslu smits í nærsamfélaginu, segir á vef menntamálaráðuneytisins.
Sjá nánar:
Leiðbeiningar fyrir framhaldsskóla, 20. september
Leiðbeiningar fyrir háskólastig, 20. september