Guðlaugur Þór óskar eftir undanþágu frá flugbanni

Frá fundi utanríkisráðherra Íslands og Bandaríkjanna í Washington á dögunum.

Íslensk stjórnvöld hafa í morgun komið á framfæri hörðum mótmælum við aðgerðum sem bandarísk stjórnvöld kynntu í gærkvöldi. Þær fela í sér komubann ferðamanna sem dvalið hafa í Schengen-ríkjum og munu geta haft alvarleg áhrif á Íslandi, einkum fyrir ferðaþjónustu.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarmálaráðherra, átti í morgun samtal við sendiherra Bandaríkjanna, og í kjölfarið fund með staðgengli hans, til þess að koma mótmælum á framfæri.

Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hefur utanríkisráðherra í þessum samtölum lagt á það ríka áherslu að Ísland verði undanþegið ákvæðunum í ljósi landfræðilegrar sérstöðu sinnar og víðtækra aðgerða sem íslensk stjórnvöld hafa gripið til til að hefta útbreiðslu COVID-19 hér á landi.

Guðlaugur Þór hefur óskað eftir símafundi með bandarískum starfsbróður sínum í dag. Þá hefur hann óskað eftir fundi í utanríkismálanefnd við fyrsta tækifæri til að ræða þá stöðu sem upp er komin.