Guðlaugur Þór: Þing og þjóð standi saman gegn einangrunarstefnu

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flutti opnunarávarp sitt í morgun.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flutti í morgun opnunarávarp á ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, Norðurlanda í fókus og utanríkisráðuneytisins sem ber titilinn „Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?“.

Stjórnmálamenn, sérfræðingar, fræðimenn og áhugamenn um alþjóðamál fluttu þar erindi og tóku þátt í fjölbreyttum umræðum um alþjóðasamvinnu.

Í ræðu sinni sagði Guðlaugur Þór mikilvægt að þing og þjóð stæðu saman gegn þeirri einangrunarstefnu sem nú ryður sér til rúms í Evrópu og á Íslandi.

„Alþjóðleg samvinna og virk hagsmunagæsla er undirstaða þess að lífskjör og tækifæri hérlendis geti áfram orðið með því sem best sem gerist í heiminum,“ sagði Guðlaugur Þór. „Þar er samstarfið innan Evrópska efnahagssvæðisins lykilþáttur, sem og vestræn samvinna í þágu öryggis. Síðast en ekki síst felur þátttaka í alþjóðlegri samvinnu í sér viðurkenningu erlendra ríkja á því að Ísland sé frjálst og fullvalda ríki.“ 

Fyrsta málstofa dagsins fjallaði um áhrif ungs fólks á stjórnmál. Bergur Ebbi Benediktsson flutti erindi og sagði unga fólkið standa frammi fyrir stórum áskorunum sem ekki væri hægt að takast á við á grundvelli stjórnmálahefðar 20. aldarinnar. Najmo Fiyasko, nemi í FÁ og YouTube áhrifavaldur, sagði sögu sína en hún kom til Íslands sem flóttamaður frá Sómalíu og hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum fyrir baráttu sína fyrir réttindum kvenna í heimalandinu. Í kjölfarið fylgdu pallborðsumræður um áhrif ungs fólks þar sem sérstaklega var rætt um þær leiðir sem ungt fólk hefur til að hafa áhrif í nútíma lýðræðissamfélagi.

Nokkrir sérfræðingar og sendiherrar úr utanríkisþjónustunni voru meðal þátttakenda. Davíð Logi Sigurðsson, deildarstjóri mannréttindadeildar utanríkisráðuneytisins, flutti erindi um setu Íslands í mannréttindaráðinu. Eftir hádegið fluttu Hjálmar W. Hannesson, fyrrverandi sendiherra, og Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu, erindi í málstofu um Ísland, Bandaríkin og Atlantshafsbandalagið á 21. öldinni, sem Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins stýrði.

Jóhanna Jónsdóttir, sérfræðingur, tók þátt í pallborðsumræðum um Brexit og Bryndís Kjartansdóttir, fulltrúi Íslands í embættismannanefnd Norðurskautsráðsins, tók þátt í pallborðsumræðum um hernaðarumsvif á Norðurslóðum. Þá ræddi Ragnar Þorvarðarson, sérfræðingur, um samskipti Íslands og Asíu, en hann stýrði einnig málstofu um áskoranir framtíðar og áhrif unga fólksins.

Streymi frá viðburðinum má sjá hér að neðan.

Ræðu utanríkisráðherra má finna hér.