Guðmundur Fertram Sigurjónsson forstjóri Kerecis og frumkvöðull á Ísafirði, hefur tekið forystu um Vestfjarðalínuna, verkefni sem byggir á efnahagsundrinu sem orðið hefur til á Vestfjörðunum undanfarin ár, en kallar eftir stórauknum innviðum og meiri uppbyggingu.
Hann gagnrýnir í stórmerkilegu spjalli við Björn Inga á Viljanum boðaðar breytingar á rekstrarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja sem boðaðar eru í fjárlögunum sem nú liggja fyrir þinginu, talar upp sjávarútveginn og eldisiðnaðinn og talar um komandi þingkosningar, borgarlínuna sem þenst út í áætlunum meðan tækniþróun bendir í aðra átt og leggur áherslu á að meirihluti þjóðarinnar vilji sjálfbæra nýtingu auðlinda og verðmætasköpun, en aðeins lítill minnihluti ekki. Meirihlutinn verði nú að fá að ráða för.