Há landsframleiðsla á mann og góð staða ríkisfjármála

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra.

Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur birt nýtt mat á lánshæfi ríkissjóðs. Lánshæfiseinkunnir eru óbreyttar; langtímaeinkunnir í innlendri og erlendri mynt standa í A og skammtímaeinkunnir eru óbreyttar í F1+. Horfur eru stöðugar. 

Í fréttatilkynningu Fitch segir að A lánshæfiseinkunn ríkissjóðs endurspegli m.a. háa landsframleiðslu á mann og góða stöðu ríkisfjármála. Stærð hagkerfisins og takmarkaður fjölbreytileiki útflutnings draga einkunnina hins vegar niður.

Verulegur bati á efnahagsreikningi hins opinbera, studd varfærinni stefnu í opinberum fjármálum, ásamt frekari bata í ytri stöðu og viðnámsþrótti hagkerfisins til að bregðast við ytri áföllum, gætu leitt til hærri lánshæfiseinkunnar. 

Viðvarandi og skarpari niðursveifla en gert er ráð fyrir með tilheyrandi áhrifum á bankakerfið, ásamt verulegu fjármagnsútflæði sem ógnað gæti fjármálastöðugleika, gæti leitt til lægri lánshæfiseinkunnar, að því er greint er frá á vef stjórnarráðsins.

Fréttatilkynning Fitch Ratings