Hættustig í Vestmannaeyjum: Raunveruleg hætta á að neysluvatnslögnin við land rofni alveg

Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að lýsa yfir hættustigi Almannavarna vegna skemmda á neysluvatnslögn sem liggur til Vestmannaeyja. Raunveruleg hætta er á að neysluvatnslögnin rofni alveg.

Þetta segir í tilkynningu frá Almannavörnum. Neysluvatn í Vestmannaeyjum hefur frá því á sjöunda áratug síðustu aldar verið tekið úr lind í 210 metra hæð í landi Syðstu-Merkur undir Eyjafjöllum. Byggt er yfir lindina, svo að útilokað er, að yfirborðsvatn eða óhreinindi komist í vatnið og frá henni liggur svo leiðsla niður að fjöru og á hafsbotni til Eyja.

Þessi mikilvæga lögn er nú skemmd. Fyrir liggur að umfang skemmda er mikið og alvarlegt. Skemmdirnar ná yfir um 300 metra kafla á lögninni. Á myndum sem teknar hafa verið neðansjávar sést jafnframt að lögnin hefur færst verulega úr stað. Þessi staða gerir möguleika á bráðabirgðaviðgerð erfiða.  Eina varanlega lausnin er ný lögn. Mikilvægt er að vinna mat á afleiðingum sem takmarkað rennsli vatns eða algert rof hefði á íbúa og starfsemi í Vestmannaeyjum og hrinda af stað mótvægisaðgerðum til að koma í veg fyrir að neyðarástand skapist.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, í samráði við lögreglustjórann í Vestmannaeyjum, Vestmannaeyjabæ, HS veitur, viðbragðsaðila og aðra hagaðila, vinna á næstu dögum að tillögum og framkvæmdum því tengt. Markmið þeirrar vinnu er að tryggja öryggi og velferð Vestmanneyinga.

Að svo komnu er lögnin enn nothæf og þjónar vatnsþörf Vestmannaeyja að fullu. Því er ekki þörf á að spara eða safna vatni að svo stöddu.