Hafa lengi beðið eftir þessum degi: Hægt að hefja flutning Hamraneslínu

Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gær voru tvö framkvæmdaleyfi samþykkt sem marka munu tímamót í uppbyggingu og öryggi atvinnulífs í Hellnahrauni og uppbyggingu byggðar í Skarðshlíð, nýju og fjölskylduvænu íbúðahverfi inn af Völlunum í Hafnarfirði.

Samþykkt var að Landsnet fengi framkvæmdarleyfi fyrir breytingum á legu Hamraneslínu 1 og 2 og mun háspennulínan færast tímabundið á kafla við tengivirkið í Hamranesi. Einnig var samþykkt að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi til að tvöfalda kaflann á Reykjanesbraut frá Kaldársselsvegi og vestur fyrir Krýsuvíkurgatnamót með því að byggja nýja akbraut sunnan núverandi vegar. Hafnarfjarðarbær hefur talað máli tvöföldunar um árabil og loks sér fyrir endann á þessum áfanga tvöföldunar Reykjanesbrautarinnar.

Staðið uppbyggingu fyrir þrifum

Lega Hamraneslínu í nýjasta íbúðahverfi Hafnarfjarðar hefur staðið uppbyggingu í hverfinu fyrir þrifum en línan liggur í dag þvert í gegnum Skarðshlíðina. Staðið hefur til að færa háspennulínuna um töluvert skeið og er því miklum áfanga náð með veitingu þessa leyfis þannig að framkvæmdir við flutning geti loks hafist, núverandi íbúum í Vallahverfi, framtíðaríbúum í Skarðshlíðarhverfi og öðrum Hafnfirðingum til mikillar ánægju.

Hamraneslína.

„Ég fagna því mjög að framkvæmdaleyfin séu nú samþykkt og að við sjáum loks fyrir endann á flutningi Hamranesslínunnar. Við höfum um langt skeið barist fyrir því að koma þessum málum í réttan farveg. Sannarlega hefði verið gott fyrir alla hlutaðeigandi að hefja þessar framkvæmdir fyrir nokkuð löngu og höfum við beðið lengi eftir þessum degi“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar í frétt sem birtist á heimasíðu bæjarins.

Áætlað er að framkvæmdum verði að fullu lokið um mánaðarmótin október/nóvember 2019.

Uppbygging á nýju hverfi í Skarðshlíð skiptist í þrjá áfanga og hefur öllum lóðum í áfanga 1, sem stendur á flata undir Skarðshlíðinni sjálfri og rýmir fjölbýlishús, verið úthlutað. Lóðir í áfanga 2 eru nú til úthlutunar og hefur nokkrum hluta þeirra þegar verið úthlutað. Gert er ráð fyrir að opnað verði fyrir úthlutun lóða í síðasta áfangann á vormánuðum en þar stendur nú yfir undirbúningur og deiliskipulagsvinna. Strax í framhaldinu mun Hamranesið í heild sinni koma til úthlutunar. Gera má ráð fyrir að svæðið í heild, Skarðshlíð og Hamranes rými hátt í 2000 íbúðir og það á friðsælum og fjölskylduvænum stað þar sem stutt er í alla þjónustu.

Skarðshlíðarskóli teikning.

Skarðshlíðarskóli tók til starfa í nýju og glæsilegu húsnæði í Skarðshlíð síðastliðið haust og hýsir skólinn nú í fyrsta áfanga nemendur í 1. – 4. bekk, í heild 97 nemendur í sex bekkjardeildum en mun fullbúinn, sumarið 2020, verða tveggja hliðstæðu grunnskóli með um 400-500 nemendur. Gert er ráð fyrir að fjögurra deilda leikskóli fyrir 80-90 nemendur verði opnaður nú í sumar ásamt útibúi frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar sem getur annað allt að 200 nemendum. „Það eru spennandi tímar framundan á þessu svæði og ekki oft sem innviðir eins og nýr grunnskóli taki á móti nýjum íbúum sem er raunin í þessu hverfi. Ásvallabraut mun svo opna á enn frekari tækifæri fyrir hverfið enda um að ræða greiða tengingu við helstu umferðaræðar“ segir Rósa að lokum.