Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir að ummæli Más Guðmundssonar seðlabankastjóra, um umboðsmann Alþingis sem koma fram í fyrirsögninni hér að ofan, beri þess keim að þá þegar í nóvember 2015 hafi hann ekki ætlað sér að bregðast við athugasemdum umboðsmanns um stjórnsýslu bankans.
„Á ótrúlegan hátt komst hann upp með það,“ segir Þorsteinn Már í bréfi sem hann sendi starfsfólki fyrirtækisins í dag í tilefni álits umboðsmanns, en þar fær stjórnsýsla Seðlabankans í Samherjamálinu svokallaða falleinkunn.
Í bréfinu segir Þorsteinn Már að seðlabankastjóri hafi gert sér grein fyrir því að gjaldeyrisreglurnar hafi ekki getað verið grundvöllur aðgerða allt frá árinu 2011. Hann rifjar upp orð bankastjórans á blaðamannafundi 21. september 2011:
„Það sem að við höfum verið að bíða eftir og í fyrsta lagi náttúrulega að yrði samþykkt þetta frumvarp á þinginu, nú liggur það fyrir. Vegna þess að þar fáum við miklu traustari lagaheimildir, sko nú er það þannig að það er alltaf umdeilt meðal lögfræðinga orðið þessa dagana hvort þú mátt gera eitthvað. Sumir segja þú mátt aldrei gera neitt nema það standi nákvæmlega í lögunum að þú megir gera það. Aðrir segja, ja, það er ekki bannað og þú hefur svona almennar heimildir. Út af þessu og þetta er eitthvað sem lögfræðingastéttin á Íslandi þarf að gera upp við sig.“
Segir Þorsteinn Már að ofangreind tilvitnum lýsi því kannski líka hvernig seðlabankastjóri lítur á vald sitt.
Til einföldunar segir forstjóri Samherja að draga megi gagnrýni umboðsmanns saman með eftirfarandi hætti:
• Stjórnendur seðlabankans vissu að bankinn gæti ekki sektað, en gerðu það samt.
• Seðlabankinn hefur ekki beitt meðalhófi eins og aðrar stofnanir.
• Seðlabankinn hefur beitt jafnræðisreglu með röngum hætti.
• Seðlabankinn hefur veitt umboðsmanni og öðrum rangar upplýsingar.
• Seðlabankinn leyndi umboðsmann upplýsingum.
„Ágætu starfsmenn, álit umboðsmanns Alþingis er enn einn sigur okkar og staðfestir það sem við höfum alltaf sagt varðandi framgöngu stjórnenda seðlabankans gagnvart starfsfólki Samherja og fyrirtækinu sjálfu.
Það verður fróðlegt að sjá greinargerð bankaráðs til forsætisráðherra um framgöngu stjórnenda seðlabankans gagnvart Samherja og hvort hún geti orðið grundvöllur þess að þessu máli ljúki.
Ég verð þó að viðurkenna að eftir allt sem á undan hefur gengið er ég hóflega bjartsýnn á það og er undir það búinn að við þurfum að gera okkar skýrslu til forsætisráðherra, af nógu er að taka.
Stjórnendur seðlabankans hafa ítrekað brotið á okkar réttindum og hefur framferði þeirra verið óátalið til þessa. Ég get þó ekki annað en vonað að nú verði breyting á þegar forsætisráðherra hefur skorist í leikinn,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson.