Helgi stækkar veldi sitt með kaupum á DV, Eyjunni og Pressunni

Helgi Magnússon fjárfestir.

„Gerður hefur verið samningur þar sem Torg ehf., sem gefur út Fréttablaðið, og heldur úti vefmiðlunum frettabladid.is og hringbraut.is, kaupir tilteknar eignir af Frjálsri fjölmiðlun ehf., útgáfufélagi DV.“

Þannig hljómar stutt tilkynning sem birt var fyrir skemmstu á vef Fréttablaðsins, en starfsmannafundir voru haldnir fyrr í morgun hjá Frjálsri fjölmiðlun og Torgi.

„Hið selda er útgáfuréttur að DV og vefmiðillinn dv.is, ásamt gagnasafni. Samningurinn er með fyrirvara um samþykki fjölmiðlanefndar og Samkeppniseftirlits.

DV á sér langa útgáfusögu hérlendis og hefur undanfarið verið gefið út vikulega. Dv.is, ásamt undirvefjunum eyjan.is, pressan.is, 433.is, fokus.is og bleikt.is, er einn fjölsóttasti vefmiðill landsins samkvæmt mælingum Gallup.

Verði af kaupunum verða vefmiðlar Torgs meðal þeirra víðlesnustu hérlendis,“ segir ennfremur í fréttinni.

Þar með er ljóst að Helgi Magnússon, aðaleigandi Torgs, styrkir enn stöðu sína sem einn umsvifamesti fjölmiðlaútgefandi landsins.