Viljinn birtir hér í heild sinni, bréf sem Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins (BR), sendi Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur fjármálaráðherra í gær, í tilefni af kaupum Landsbankans á Tryggingamiðstöðinni (TM Tryggingum):
Efni: Tilboð Landsbankans hf. um kaup á hlutafé TM trygginga hf.
Vísað er til bréfs fjármála- og efnahagsráðherra, dags. fyrr í dag þar sem Bankasýsla ríkisins („BR“) er m.a. spurð út í tilkynningu Kviku banka hf. („Kvika“), dags. 17. mars sl., þar sem upplýst var um að Kvika hafi ákveðið að taka tilboði Landsbankans hf. um kaup á 100% hlutafjár í TM tryggingum hf. („TM“), með hefðbundnum fyrirvörum. Kaupverð skv. tilkynningunni er 28,6 ma.kr. og mun Landsbankinn greiða kaupverðið með reiðufé.
BR upplýsir fjármála- og efnahagsráðherra hér með um að stofnuninni var alls ókunnugt um ofangreind viðskipti og tekur undir þau rök og þær áhyggjur sem fram koma í bréfi ráðherra. BR fékk ekki upplýsingar um fyrirætlanir Landsbankans að leggja fram skuldbindandi tilboð. Þá var stofnunin ekki upplýst um að skuldbindandi tilboð hafi verið lagt fram, heldur var einungis upplýst um þegar skuldbindandi tilboði var tekið um kl. 17 þann 17. mars sl.
Það skal hins vegar tekið fram að þann 11. júlí 2023 upplýsti formaður bankaráðs Landsbankans BR um áhuga Landsbankans á að kaupa TM eftir að samrunaviðræðum Íslandsbanka og Kviku var slitið. Stjórn BR var upplýst samdægurs um samskiptin á stjórnarfundi. Á þessum tíma var TM ekki í formlegu söluferli og formaður bankaráðs tilkynnti BR um að hún myndi halda stofnuninni upplýstri um framgang mála. Þann 20. júlí 2023 er BR upplýst um það að ekki hafi komist á formlegar viðræður milli Landsbankans og Kviku um kaup á TM. Til frekari upplýsinga þá átti BR reglulegan fund með bankaráði Landsbankans þann 16. nóvember sl. án þess að þetta hafi komið til umræðu, en formlegt söluferli TM hófst daginn eftir.
Engar frekari upplýsingar bárust BR um málið en formaður bankaráðs Landsbankans telur sig hafa minnst á endurvakinn áhuga Landsbankans á að taka þátt í söluferlinu. Það á að hafa komið fram í óformlegu símtali til stjórnarformanns BR vegna launauppbótar starfsmanna í desember 2023, sem þegar hafði verið ákveðin. Engar formlegar upplýsingar hafa þó á nokkrum tímapunkti borist BR um þátttöku Landsbankans í söluferlinu. Þvert á móti taldi stjórn BR einsýnt að ekki yrði af viðskiptunum af hálfu Landsbankans í kjölfar viðtals við fjármála- og efnahagsráðherra þann 6. febrúar sl.
Var sú afstaða ráðherra rædd á stjórnarfundi BR þann 8. febrúar sl. og bókað að ráðherra hugnaðist ekki að Landsbankinn kaupi TM.
Í því skyni að upplýsa um málsatvik óskaði BR eftir, og hélt, fund með bankaráði Landsbankans í dag þar sem bankaráðið var spurt út í viðskiptin. Það er mat BR að Landsbankanum hafi borið að upplýsa um fyrrgreind viðskipti með skýrum og formlegum hætti skv. samningi aðila frá desember 2010. Slíkt var því miður ekki gert. Það kom hins vegar fram á fundinum með bankaráði að því hafi verið ljóst fyrrgreind afstaða ráðherra til kaupanna.
BR hefur nú óskað eftir formlegri og ítarlegri greinargerð bankaráðs Landsbankans um ofangreind viðskipti. Þess var óskað að greinargerðin yrði lögð fram innan 7 daga. Þar til hún hefur verið lögð fram og metin, getur BR ekki tekið ákvarðanir um næstu skref.
Í ljósi þess að BR telur að þær upplýsingar, sem beðið er um í greinargerð Landsbankans, geti haft mikil áhrif á dagskrá, umræður og niðurstöður fyrirhugaðs aðalfundar bankans þann 20. mars nk. var þess krafist að bankaráðið myndi fresta aðalfundi um 4 vikur.
Meðfylgjandi bréfi þessu er afrit af bréfi BR til bankaráðs Landsbankans. Ráðherra verður upplýst um öll svör sem berast.
Óski ráðherra frekari upplýsinga verða þær veittar eftir bestu getu.
Virðingarfyllst,
f.h. Bankasýslu ríkisins
Jón G. Jónsson, forstjóri