Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta fyrir 2019 að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1451 dýr á árinu, 1043 kú og 408 tarfa. Um er að ræða sama fjölda dýra og hreindýrakvóti fyrra árs kvað á um.
Veiðin skiptist milli níu veiðisvæða og eru mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði tilgreind nánar í sérstakri auglýsingu.
Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda. Þá hefur ráðuneytið verið með í skoðun áhrif kúaveiða á kálfa. Niðurstöður þeirrar athugunar geta mögulega haft áhrif á veiðitíma hreindýra, sem kveðið er á um í reglugerð.
Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa. Óheimilt er að veiða kálfa.
Umhverfisstofnun auglýsir og sér um sölu allra veiðiheimildanna.