Hröð útbreiðsla á Vestfjörðum veldur áhyggjum: Hertar reglur

Ljósmynd: Lögreglan.

Í ljósi nýrra smitrakninga á norðanverðum Vestfjörðum hefur aðgerðastjórn almannavarna á Vestfjörðum í samráði við sóttvarnalækni og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra ákveðið að bregðast enn frekar við COVID-19 á Suðureyri, Flateyri, Þingeyri og Súðavík með hertum aðgerðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum.

Aðgerðirnar eru:

• Leik- og grunnskólum á Suðueyri, Flateyri, Þingeyri og Súðavík verði lokað frá og með morgundeginum 6. apríl 2020. Þó skulu börn á forgangslistum fá vistun á leikskólum og 1. og 2. bekkjum grunnskóla.
• Samkomubann verði miðað við 5 manns (þetta á þó ekki við um fjölskyldur sem búa á sama heimili).
• Fjöldi viðskiptavina í stærri verslunum (>150 fermetrar) sé að hámarki 30 á hverjum tíma.

Hvatt er til þess að fólk haldi sig heima, haldi samskiptafjarlægð, takmarki ferðir og fylgi leiðbeiningum yfirvalda.

Þeim vinnustöðum eða hópum sem telja sig þurfa undanþágu er bent á að sækja um slíkt hjá heilbrigðisráðuneytinu.

Fimm ný smit komu upp á síðasta sólarhring og tengjast þau öll norðanverðum Vestfjörðum. Smitrakning stendur yfir og beðið er niðurstöðu nokkurs fjölda sýna sem tekin hafa verið.

Ákvörðun aðgerðastjórnar frá 1. apríl sl. um hertar aðgerðir í Bolungarvík og Ísafirði eru enn í gildi. Rauði kross Íslands veitir fólki í sóttkví og einangrun aðstoð í síma 1717. Þessi ráðstöfun er tímabundin, ætluð til að hefta COVID-19 smit.

Fólk sem finnur til einkenna á að halda sig heima og hafa samband við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða í síma 450 4500 eða á heilsuvera.is. Tekin eru sýni alla virka daga á Ísafirði kl. 10-11, en fyrst þarf að fá samband við lækni. Spurningum um sjúkdóminn sjálfan er mörgum svarað á covid.is.

Frekari upplýsingar um þessar reglur verða veittar í netfanginu yfirstjorn-lvf@logreglan.is og á Facebook-síðu Lögreglunnar á Vestfjörðum.