Hvað er næst, að við sinnum þrifum í Smáralind?

Yfirlæknirinn Ragnar Freyr Ingvarsson er kannski betur þekktur sem sjónvarpskokkurinn Læknirinn í eldhúsinu.

„Það er furðuleg hugmynd að Landspitalinn taki að sér að skima fríska ferðamenn við landamæri. Hvað er næst, að við sinnum þrifum í Smáralind?“

Þetta segir Ragnar Freyr Ingvarsson sem var yfirlæknir göngudeildar Covid-sjúklinga á Landspítalanum á fésbókinni í dag um þau tíðindi að Landspítalinn eigi nú alfarið að annast sýnatöku á landamærunum og skimun fyrir kórónuveirunni hjá þeim sem koma til landsins.

Hann spyr hvort það sé hlutverk háskólasjúkrahússins að sinna frísku fólki.

„Höfum við ekki næg verkefni á okkar könnu nú þegar? Þessar ráðstafanir taka ekki mið af þeirri þekkingu sem við höfum aflað okkur á liðnum vikum og mánuðum.

Ferðamenn virðast ekki smita að neinu ráði. Væri það staðreyndin þá væru tilfelli að dúkka upp hér og þar í samfélaginu. Ég dreg alltént þá ályktun að það sé óþarfi að skima þá. Og kostar fúlgur fjár.

Íslendingar og aðrir sem eiga ríkt tengslanet eru líklegri til að smita. Gögnin okkar sýna það kristaltært.

Flestir þróa með sér einkenni 4-5 dögum eftir að þeir smitast. Einstaka tilfelli fara fram yfir það og allt að 13 dögum. PCR prófin eru nákvæm þegar fólk er með einkenni.

Við myndum ná langstærstum hluta með 5 daga sóttkví og skimun þá eða lengri sóttkví fyrir þá sem ekki vilja skimun eða reynist jákvæðir.

Það að LSH verji milljörðum í skimanir er augljós sóun á almannafé!“