Innleiðing þriðja orkupakkans stærra en Icesave málið

Guðni Ágústsson fv. ráðherra. / Viljinn: Rúnar Gunnarsson.

Fyrirvarar sem utanríkisráðherra kveðst hafa fengið vilyrði fyrir vegna þriðja orkupakkans og telur Ísland þannig komið með belti og axlabönd eru blekking.

Þetta sagði Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra og formaður Framsóknarflokksins í viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur í síðdegisútvarpi Útvarps Sögu í dag.

Guðni segir orkupakkamálið í raun stærra en Icesave málið enda sé búið að koma málinu fyrir á þann hátt að það fari ekki fyrir forseta og því eigi þjóðin ekki þess kost að fá að kjósa um málið, og verði pakkinn samþykktur og mál komi upp þar sem tekist yrði á um fyrirvarana myndu þeir ekki halda.

Guðni sagði í viðtalinu að halda megi því fram að Ísland sé að ýmsu leyti komið í Evrópusambandið með því að ýmsar reglur sambandsins þegar verið innleiddar hérlendis og að undir það hafi Íslendingar beygt sig.  Þá benti hann á að nú þegar séu komin fram hundruðir umsókna um leyfi til þess að setja upp smávirkjanir, svo að greinilegt sé að samþykktar orkupakkans sé beðið með mikilli eftirvæntingu.

„Tröllin taka landið, þau eru farin að yfirtaka jarðirnar svo það er allt komið í gang, svo ætlum við að fara að flytja hér inn hrátt kjöt og kannski með því eyðileggja íslenskan landbúnað“, sagði Guðni ennfremur.