Íslendingar eru nú 358.780

Í lok 1. ársfjórðungs 2019 bjuggu alls 358.780 manns á Íslandi, 183.920 karlar og 174.860 konur.

Landsmönnum fjölgaði um 1.730 á ársfjórðungnum eða um 0,5%. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 229.490 manns en 129.290 utan þess.Alls fæddust 1.030 börn á 1. ársfjórðungi, en 560 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust 1.260 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 130 umfram aðflutta. Aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.390 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu, að því er kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara en þangað fluttust 160 manns á 1. ársfjórðungi. Alls fluttust 600 íslenskir ríkisborgarar frá landinu og af þeim fluttust 310 til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Af þeim 940 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 330 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (170), Noregi (70) og Svíþjóð (80), samtals 320 manns af 470. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara en þaðan fluttust 650 til landsins af alls 2.330 erlendum innflytjendum. Litháen kom næst, en þaðan fluttust 270 erlendir ríkisborgarar til landsins.

Í lok fyrsta ársfjórðungs bjuggu 45.670 erlendir ríkisborgarar á Íslandi eða 12,7% af heildarmannfjölda.