Katrín fundaði með Sturgeon í Edinborg

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra skosku heimastjórnarinnar.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, átti tvíhliða fund með Nicolu Sturgeon, fyrsta ráðherra skosku heimastjórnarinnar í dag. Ráðherrarnir ræddu meðal annars um samstarfsverkefni smærri ríkja á sviði hagsældar (e. the Wellbeing Economy Government project).

Skotland leiðir verkefnið og munu ráðherrarnir taka þátt í stefnumótunarfundi því tengdu á morgun. Ráðherrarnir ræddu einnig um loftslagsmál og um samstarf ríkjanna á sviði sjálfbærrar ferðamennsku.

„Það eru sterk tengsl á milli Íslands og Skotlands og ég fagna mjög samstarfi okkar á sviði hagsældar og sjálfbærrar ferðaþjónustu,“ sagði Katrín eftir fundinn.

„Við lítum til stefnumótunar skoskra stjórnvalda í þessum málaflokkum og fleirum, þar á meðal að því er varðar stafrænt kynferðisofbeldi og heimilisofbeldi. Þá ræddum við sérstaklega um loftslagsmál enda löngu tímabært að þau mál skili sér inn í stefnumótun á öllum öðrum sviðum.“

Forsætisráðherra átti einnig fund með Fionu Hyslop, ráðherra menningarmála, ferðamennsku og alþjóðamála og Roseanna Cunningham, ráðherra umhverfis- og loftslagsmála í skosku heimastjórninni i Edinborg.

Tilefni fundanna er þriggja daga heimsókn forsætisráðherra til Bretlands sem hófst á heimsókn til Glasgow og Edinborgar í dag.