Katrín Jakobsdóttir tekur aftur forystu en Jón Gnarr fellur harkalega

Katrín Jakobsdóttir fv. forsætisráðherra hefur aftur tekið forystu í kosningabaráttunni um embætti forseta Íslands og mælist með hæst fylgi frambjóðenda eða 29,9% í nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands, sem stofnunin birti á samfélagsmiðlum í kvöld.

Samkvæmt könnuninni sem gerð var á tímabilinu 22.-30. apríl er Halla Hrund Logadóttir í öðru sæti með 27,6%. Ekki er marktækur munur á fylgi Katrínar og Höllu Hrundar.

Baldur Þórhallsson er í þriðja sæti með tæpan fjórðung eða 23,6%. Fylgi Jóns Gnarr mældist töluvert lægra en fylgi þriggja efstu eða 7,4%.

„Gögn könnunarinnar voru nánar greind eftir kyni, aldri, kjördæmi og stjórnmálaskoðunum þátttakenda.

Katrín sækir fylgi sitt einkum til kjósenda ríkisstjórnarflokkanna, Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna. Fylgi Katrínar er mest meðal 60 ára og eldri. Kynjahlutfall fylgjenda er nokkuð jafnt. Katrín sækir fylgi sitt frekar til kjördæma á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðarinnar.

Halla Hrund höfðar heldur meira til eldri aldurshópa kjósenda en yngri. Halla sækir fylgi sitt til kjósenda allra flokka en þó minnst til Vinstri grænna. Hærra hlutfall karla en kvenna myndu kjósa Höllu Hrund. Fylgi Höllu Hrundar er meira á landbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu.

Stuðningur við Baldur er mestur frá yngri aldurshópum. Kjósendur allra flokka styðja Baldur til forseta en stuðningur er minnstur frá kjósendum Miðflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna. Mun hærra hlutfall kvenna en karla styður Baldur. Fylgi Baldurs dreifist nokkuð jafnt yfir öll kjördæmi landsins.

Jón Gnarr sækir sitt fylgi aðallega til yngri kjósenda og Pírata. Fleiri karlar en konur styðja Jón Gnarr,“ segir í færslu Félagsvísindastofnunar

Könnunin var send út á netpanel Félagsvísindastofnunar. 2.638 manns svöruðu könnuninni. Af þeim tóku 93% afstöðu til spurningarinnar um hvern þau myndu kjósa til forseta ef kosið yrði í dag.

Gögnin voru vigtuð til þess að endurspegla þýðið sem best.