„Háttvirtur formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis notar orðið „skítur“ um það að íslenska ríkið taki til varna þegar að hagsmunum Íslands og íslenskrar stjórnskipunar er sótt í gegnum erlendar stofnanir. Það kemur svo sem ekki á óvart að Samfylkingin taki afstöðu gegn Íslandi eins og hún gerði í Icesave málinu og með umsókninni og aðlöguninni að Evrópusambandinu á sínum tíma. En þetta orðbragð lýsir alveg nýjum metnaði gegn hagsmunum Íslands.“
Þannig kemst Sigríður Á. Andersen, fv. dómsmálaráðherra, að orði í færslu á fésbókinni í gærkvöldi í tilefni þeirra ummæla Helgu Völu Helgadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar og formanns eftirlits- og stjórnskipunarnefndar Alþingis á fésbók, að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, eftirmaður Sigríðar í stóli dómsmálaráðherra, svari ekki fyrirspurnum sínum um Landsréttarmálið.
Fréttablaðið skýrir frá því að Þórdís Kolbrún hafi þegar svarað fyrirspurn þingmannsins, en þau hafi ekki enn verið birt á vef Alþingis. En Helga Vala setti fram sínar kenningar um tafir í málinu:
„Getur verið að ég fái ekki svarið því það er verið að bíða eftir nýjum dómsmálaráðherra sjálfstæðisflokks og sú sem þar situr vill bara alls ekki fá þennan skít á sig?“
Þingmenn Samfylkingarinnar bera líka ábyrgð
Sigríður Andersen telur ástæðu til að rifja upp forsögu málsins í færslu sinni:
„Ráðherra, Alþingi og forseti Íslands, hann umfram alla skyldu og auðvitað án ábyrgðar, komust að sömu niðurstöðu um skipun 15 dómara við Landsrétt. Hæstiréttur komst svo að þeirri niðurstöðu að við dómurunum 15 yrði ekki hróflað og að sakborningar nytu réttlátrar málsmeðferðar fyrir dóminum. Allar greinar ríkisvaldsins voru samstíga um niðurstöðuna. Aldrei áður hafa dómarar verið skipaðir með svo þéttum stuðningi allra greina ríkisvaldsins. Landsréttur starfaði svo með miklum ágætum á annað ár.

Þá gerir ein af pólitískt skipuðum stofnunum Evrópuráðsins, MDE, því skóna í málaferlum manns, sem játaði að hafa ekið bifreið undir áhrifum fíkniefna og án ökuréttinda, að dómur Landsréttar yfir manninum hefði verið mannréttindabrot!
Önnur ástæðan fyrir þessari niðurstöðu MDE var sú ákvörðun Alþingis, þvert á það sem ég lagði til við þingið, að greiða atkvæði í einu lagi um allar 15 tillögurnar um dómarana eins og þingsköp gera auðvitað ráð fyrir að sé mögulegt þegar enginn hreyfir andmælum. Þeir sem stóðu að þessu „mannréttindabroti“ á sakborningi að mati MDE voru meðal annarra þingmenn Samfylkingarinnar,“ segir Sigríður ennfremur.