Landsbankinn svarar fyrir sig: Kveðst í fullum rétti til að kaupa TM

Landsbankinn hefur birt á vefsíðu sinni bréf bankaráðs til Bankasýslu ríkisins í tilefni af athugasemdum um kaup bankans á Tryggingamiðstöðinni, TM Tryggingum. Eins og Viljinn greindi frá í vikunni, krafðist Bankasýslan þess að aðalfundi bankans yrði frestað og óskaði svara við tilteknum spurningum um ferlið. Mátti skilja bréf forstjóra Bankasýslunnar svo, að þar á bæ hefðu menn komið af fjöllum varðandi kaupin á TM, en því hafnar bankaráð Landsbankans alfarið.

„Vegna bréfsins vill bankaráð leggja áherslu á eftirfarandi:

Bankaráð hefur um nokkurt skeið haft áhuga á að bæta tryggingum við þjónustuframboð bankans.

Frá miðju ári 2023 hefur bankaráð átt frumkvæði að samskiptum við Bankasýsluna þar sem fram hefur komið áhugi bankaráðs á tryggingamarkaðnum og eftir atvikum kaupum á TM. Samskiptin hafa farið fram í tölvupóstum, á fundum og með símtölum.

Í tölvupósti frá formanni bankaráðs 11. júlí 2023 til Bankasýslunnar var greint frá því að bankinn hefði haft samband við Kviku og lýst yfir áhuga bankans á að kaupa TM.  Bankasýslan svaraði tölvupóstinum samdægurs án athugasemda varðandi kaupin.

Formlegt söluferli á TM hófst 17. nóvember 2023. Þann 20. desember 2023 var Bankasýslan upplýst í símtali um að bankinn hefði skilað inn óskuldbindandi tilboði í TM. Í kjölfarið tók bankinn þátt í ferli sem lauk með því að bankinn lagði fram skuldbindandi tilboð í félagið þann 15. mars 2024. Þann 17. mars var Bankasýslan upplýst um að Kvika hefði samþykkt skuldbindandi tilboð bankans.

Bankasýslan setti aldrei fram athugasemdir eða óskaði eftir frekari upplýsingum eða gögnum frá bankaráði fyrr en eftir að tilkynnt var um samþykki Kviku á skuldbindandi tilboði bankans.

Bankaráð uppfyllti skyldur sínar til upplýsingagjafar í samræmi við núgildandi eigandastefnu ríkisins sem og samkvæmt samningi bankans við Bankasýsluna frá 2010.

Það er mat bankaráðs að ákvörðun um kaup á TM sé á forræði bankaráðs, kaupin á TM samrýmist eigendastefnu ríkisins og þjóni langtímahagsmunum bankans og hluthafa. Með því að bæta tryggingum við þjónustu Landsbankans geti bankinn boðið viðskiptavinum sínum enn betri og fjölbreyttari þjónustu, auk þess sem það muni styrkja reksturinn og auka verðmæti bankans.

Kaup bankans á TM eru ekki talin auka áhættu í rekstri bankans umfram þann ávinning sem hlýst af kaupunum. Kaupin hafi ekki áhrif á getu bankans til að uppfylla arðgreiðslustefnu bankans um að greiða að jafnaði um 50% af hagnaði fyrra árs í arð til hluthafa en muni styrkja arðgreiðslugetu bankans til lengri tíma.

Að síðustu skal áréttað að Bankasýslan var upplýst af hálfu bankaráðs og var kunnugt um áform bankans um að kaupa TM eins og að ofan hefur verið rakið.“