Laun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna hækkuðu um 6,3%

Frá fjörlegum umræðum á þingfundi. Viljinn: Rúnar Gunnarsson.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur staðfest í yfirlýsingu, að laun þjóðkjörinna fulltrúa á borð við forseta, ráðherra og alþingismenn og æðstu embættismanna á borð við ráðuneytisstjóra hafi hækkað í samræmi við launavísitölu um sl. áramót, eða um 6,3%. Þau höfðu þá ekki hækkað frá árinu 2016. Hins vegar hefur önnur hækkun, sem taka átti gildi nú í sumar, verið frestað til næstu áramóta.

„Vegna umræðu um launakjör þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins tekur fjármála- og efnahagsráðuneytið eftirfarandi fram: 27. mars sl. birtist á vef ráðuneytisins tilkynning um að Alþingi hefði samþykkt að hækkun sem samkvæmt lögum skyldi taka gildi 1. júlí 2020 yrði frestað til 1. janúar 2021. Um var að ræða breytingartillögu fjármála- og efnahagsráðherra, til efnahags- og viðskiptanefndar við bandorm um aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónaveiru.

Í kjölfar þess að frestunin var samþykkt barst fjármála- og efnahagsráðuneytinu erindi frá embætti forseta Íslands þar sem þess var óskað að launahækkun forseta yrði einnig frestað til næstu áramóta.

Lög um launafyrirkomulag þjóðkjörinna og æðstu embættismanna ríkisins voru samþykkt í júní í fyrra í kjölfar brottfalls laga um kjararáð. Þar er kveðið á um að laun skuli taka breytingum 1. júlí ár hvert, annars vegar í samræmi við launavísitölu Hagstofunnar vegna almenna og opinbera markaðarins, og þróun launa skv. lögum hins vegar.

Samkvæmt lögunum hefðu laun þessara hópa átt að hækka 1. júlí í fyrra en Alþingi samþykkti að fresta því um 6 mánuði í tengslum við gerð lífskjarasamninga. Tók sú hækkun því gildi 1. janúar 2020, skv. lögboðnum fyrirmælum í takt við launavísitölu ársins 2018, sem segir til um um 6,3% hækkun. Laun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna höfðu ekki verið hækkuð síðan í október 2016,“ segir í tilkynningunni.

Laun þjóðkjörinna fulltrúa, ráðherra og ráðuneytisstjóra eru eftirfarandi

 Fjárhæð frá 2016Fjárhæð frá 1. janúar 2020
Forseti Íslands2.985.0003.173.055
Þingfararkaup1.101.1941.170.569
Forsætisráðherra2.021.8252.149.200
Ráðherrar1.826.2731.941.328
Ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis1.817.6931.932.203
Ráðuneytisstjórar1.725.4801.834.181