Orðrómur um að hún hafi áhuga á embætti seðlabankastjóra
Staða og horfur efnahagsmála voru til umfjöllunar í fyrirlestri Lilju D. Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra í heimsókn hennar í Danska seðlabankann í gær.
Fyrirlesturinn vekur athygli í ljósi orðróms um að Lilja kunni að hafa áhuga á embætti seðlabankastjóra, sem auglýst hefur verið laust til umsóknar, en hann var hluti af Danmerkurferð ráðherra en að auki fundaði hún með ráðherrum mennta- og menningarmála og ræddi samstarf ríkjanna á þeim sviðum.
„Góður árangur Íslands í efnahagsmálum eftir fjármálakreppuna 2008 hefur vakið eftirtekt víða erlendis. Staða landsins er ágæt að ýmsu leyti enda er skuldastaða ríkissjóðs góð í alþjóðlegum samanburði, erlend staða þjóðarbúsins er jákvæð og gjaldeyrisvaraforði þjóðarbúsins öflugur. Þannig hefur viðnámsþróttur hagkerfisins styrkst. Hins vegar stendur íslenskt efnahagslíf frammi fyrir viðamiklum áskorunum um þessar mundir eins og kólnun hagkerfisins, stöðunni í kjaraviðræðum, horfum í ferðaþjónustu og ástandi loðnustofnsins. Það er mikilvægt að takast á við þessar áskoranir af festu og ábyrgð til að tryggja áframhaldandi lífskjarasókn í landinu,“ sagði Lilja.
Ráðherra á einnig sæti í ráðherranefnd um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins. Hlutverk nefndarinnar er að hafa eftirlit með framkvæmd efnahagsstefnunnar á einstökum sviðum en meðal verkefna sem nefndin fjallar um er framtíðarskipulag peningamála og samræming í fjármálum hins opinbera til skemmri og lengri tíma. Nefndin er auk þess stefnumótandi og í forystu varðandi samskipti við aðila vinnumarkaðarins, uppbyggingu fjármálakerfisins og stöðu Íslands á alþjóðavettvangi með tilliti til efnahagsmála.