Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum í dag að vísa tillögu Sjálfstæðisflokksins um að listaverkaeign Listasafns Reykjavíkur verði gerð sýnilegri í skólum borgarinnar til frekari úrvinnslu í menningar-, íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkurborgar.
„Ég er mjög ánægð með að tillögunni hafi verið vísað til frekari úrvinnslu enda er það mikilvægt að kynna börnum menningararf sinn og það er gefandi fyrir börn að vera innan um listaverk með því öðlast þau aukinn skilning á myndlist, skilja hana og njóta hennar. Þess vegna eigum við að fara fleiri leiðir í að gera þann mikla auð sem safnakostur Listasafnis er, sýnilegri og aðgengilegri“ segir Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og tillöguflytjandi og bætir við að sjálfsagt sé að dusta rykið af öllum þeim listaverkum sem eru í geymslum borgarinnar svo almenningur fái notið þeirra.
Reykjavíkurborg varðveitir um 17 þúsund listaverk
Marta sagði í ræðu sinni að listasafn Reykjavíkur varðveitti um 17 þúsund listaverk af ýmsum gerðum, m.a. málverk, skúlptúra, vídeóverk, textílverk og hljóðverk. Hún sagði jafnframt mörg þessara listaverka henta vel til uppsetningar í almenningsrýmum.
Í tillögunni segir „að þetta sé gert í þeim tilgangi að efla áhuga nemenda á menningu og listum. Safnstjóra Listasafns Reykjavíkur verði falið að koma á samstarfi við skóla- og frístundasvið og þess gætt við útfærslu verkefnisins að haft verði samstarf við skólastjóra og kennara. Jafnframt er lagt til að verk Listasafns Reykjavíkur verði sýnilegri í öðrum stofnunum borgarinnar í þeim tilgangi að sem flestir geti notið þeirra fjölda verka sem eru í eigu borgarinnar. Skoðað verði að koma upp sérstökum sýningum á safnaeigninni og á einstökum verkum eftir atvikum í skólum og stofnunum borgarinnar.“