Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og Embættis landlæknis að COVID-19 viðvörunarkerfi sem byggir á litum líkt og veðurviðvörunarkerfi Veðurstofu Íslands.
Viðvörunarkerfinu er ætlað að auka fyrirsjáanleika til lengri tíma varðandi þær aðgerðir sem grípa þarf til í baráttunni við faraldurinn, en forystumenn atvinnulífsins hafa lengi kallað eftir því. Hugmyndin er að lágmarka þannig heildarskaðann sem faraldurinn og aðgerðir sem gripið er til vegna hans valda í samfélaginu.
Kerfið verður kynnt nánar á upplýsingafundi Almannavarna og Landlæknis kl. 11 í fyrramálið, mánudagsmorgun.