Tölfræði um rekstur Reykjavíkurborgar og lífið í borginni hefur verið gerð aðgengileg með nýrri þjónustu, Mælaborði borgarbúa, á vef borgarinnar.
Á mælaborðinu er hægt að skoða fjölbreytt gögn sett fram á aðgengilegan hátt um þá ólíku málaflokka sem tengjast Reykjavíkurborg og lífinu í borginni, allt frá notkun sundstaða til lesskilnings skólabarna.
Að baki mælaborðinu liggur mikil undirbúningsvinna sem fjölmargir hafa komið að. Öll svið borgarinnar hafa komið að þeirri vinnu og bera ábyrgð á gögnum sem færð eru reglulega í kerfið.
Margir mælikvarðar uppfærast sjálfkrafa úr kerfum borgarinnar enda er mælaborðið spegill á stöðuna hverju sinni. Framsetning gagnanna er myndræn og miðar að aðgengilegu notendaviðmóti. Starfsemi Reykjavíkurborgar kallar á mikla gagnavinnslu til að auðvelda og bæta ákvarðanatöku og er mælaborðið ein birtingarmynd slíkrar vinnu.
Reykjavíkurborg hefur unnið að auknu aðgengi íbúa að upplýsingum um rekstur og þjónustu borgarinnar og hefur til að mynda opnað bókhald í gegnum opin fjarmál og aukið aðgengi opinna gagna, að því er segir frá í tilkynningu.
Mælaborðið er á forsíðu vefs Reykjavíkurborgar https://reykjavik.is/