Meirihlutinn í borginni með frítt spil um árabil, en sá tími er liðinn

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins. Fyrirspurnir hennar og gagnrýni leiddu til þess að Innri endurskoðun var falið að rannsaka braggamálið.

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, skýtur föstum skotum að Jóni Gnarr, fv. borgarstjóra, og sakar hann um karlrembu og kvenfyrirlitningu. Segir hún meira framboð hafa verið af skoðunum Jóns en eftirspurn um langt skeið.

„Á Jóni Gnarr er helst að skilja að ekkert sé við óráðsíu og óstjórn í Ráðhúsinu að gera – þetta sé kerfislegur vandi sem hvorki hann sem borgarstjóri eða Dagur ráði nokkuð við. Svo kvartar hann yfir umræðunni og yfirlýsingum mínum og klykkir út með því að blanda veikindum Dags inn í þetta – svona eins og það sé ódrengilegt að ræða borgarmálin af þeim sökum,“ segir Vigdís og heldur því fram að dagskrárvald vinstri manna í íslenskri þjóðmálaumræðu kristallist í furðufærslu Jóns Gnarr, eins og hún orðar það.

„Hann er í fyrsta lagi pirraður á því að kallað sé eftir því að borgarstjóri vinstri manna axli ábyrgð á því rugli sem viðgengst fyrir allra augum undir hans stjórn. Hann er auðvitað vanur hinni óskráðu reglu margra fjölmiðla að gagnrýna bara stjórnmálamenn sumra flokka – en láta aðra alveg í friði.

Karlremba og kvenfyrirlitning

Gott dæmi um karlrembuna í Jóni Gnarr og kvenfyrirlitninguna í orðum hans sem snúa að mér – þegar hann undrast að Ríkisútvarpið hafi tekið við mig viðtal: „Meira að segja Vigdís Hauksdóttir fékk fyrirsögn á RÚV um daginn. Hver er eiginlega í alvöru að pæla í því hvað henni finnst?“

Jón Gnarr telur augsýnilega að oddviti stjórnmálaflokks í borgarstjórn – og fyrrverandi alþingismaður og formaður fjárlaganefndar Alþingis – eigi ekki að komast að í fréttum RÚV af því hann tilheyrir ekki réttum flokki – er ekki hluti af góða fólkinu og er þar að auki kona.

Meira framboð en eftirspurn af skoðunum Jóns Gnarr

Af skoðunum Jóns Gnarr hefur um langt skeið verið meira framboð en eftirspurn. Hann hefur verið kvartsár undan umræðu í sinn garð – milli þess sem hann hamast á pólitískum andstæðingum og fargar málverkum sem hann hafði með sér heim í óleyfi af borgarstjórnarkontórnum.

Reglan hefur nefnilega verið sú, að meirihlutinn í borgarstjórn – bæði undir stjórn Dags B. Eggertssonar og Jón Gnarr fékk um árabil frítt spil og fór sínu fram – fjarri smásjá fjölmiðla og minnihlutans. 

Sá tími er liðinn.

Það er ekki skrítið að þeir félagar Dagur og Jón séu óhressir með það – en þeir mega vera vissur um að sú sem þetta ritar ætlar að halda sínu striki ótrauð – með heilbrigða gagnrýni og almannahagsmuni að leiðarljósi – í þágu fólksins í borginni – því það á svo miklu betra skilið.“ segir Vigdís ennfremur í færslu sinni.

Sjá frétt Fréttablaðsins um málsvörn Jóns Gnarr fyrir borgarstjóra.