Í apríl fækkaði erlendum ferðamönnum um 19% en þá komu rúmlega 106 þúsund ferðamenn til landsins samanborið við 131 þúsund í apríl 2018. Farþegum með erlent ríkisfang fækkaði um rúmlega 27 þúsund milli ára.
Þetta kemur fram í gögnum Hagstofunnar. Þetta er mesta fækkun erlendra farþega milli sömu mánaða í tvo áratugi, eða svo langt sem gögn Hagstofu ná og benda til þess að höggið á íslenska ferðaþjónustu vegna gjaldþrots WOW verði mjög þungt.
Sambærileg fækkun milli sömu mánaða var í maí 2010 þegar erlendum farþegum fækkaði um rúm 18%. Þess má geta að í apríl 2010 var eldgos í Eyjafjallajökli sem lamaði flugumferð í Evrópu og varð til þess að um það bil 95.000 skipulögðum flugferðum á Íslandi og í Evrópu var aflýst. Þá fækkaði erlendum farþegum þó einungis um 6.300, að því er segir á vefsvæði Hagstofunnar.
„Umferð í gegnum Keflavíkuflugvöll í apríl 2019 dróst einnig verulega saman. Heildarfarþegahreyfingar drógust saman um 27% á milli ára, voru tæplega 475 þúsund í síðasliðnum apríl en 650 þúsund í apríl 2018. Heildarflughreyfingar, flugtök og lendingar, voru tæplega 7 þúsund í síðasta mánuði á meðan þær voru um 9.300 í apríl 2018. Þær drógust því saman um 25% á milli ára og eru sambærilegar því sem þær voru í apríl 2017 þegar þær voru um 6.800.