„Málþófið, sem nokkrir þingmenn hafa haldið uppi á Alþingi að undanförnu vegna þeirra áforma þingmanna stjórnarflokkanna, að samþykkja orkupakka 3 er endurspeglun á þjóðarvilja, eins og hann hefur komið fram í skoðanakönnunum um málið,“ segir Styrmir Gunnarsson, fv. ritstjóri Morgunblaðsins, á vefsíðu sinni í dag.
Hann segir að þess vegna eigi ekki að atyrða þingmenn Miðflokksins fyrir málþófið, heldur þakka þeim.
„Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa tekið að sér það hlutverk að leiða þetta mál. Með því eru þeir að gera mestu mistök, sem flokkurinn hefur gerzt sekur um í utanríkismálum.
stórir hópar stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins treysta núverandi þingmönnum ekki lengur.
Slík mistök eru ekki mörg, en aðallega á undanförnum árum. Þá er átt við áform, sem þáverandi forystusveit flokksins hafði uppi um að breyta stefnu flokksins gagnvart aðild að ESB en hrökklaðist til baka með, þegar grasrótin reis upp, stuðningur sumra þingmanna við Icesave á sínum tíma og þátttaka í blekkingarleiknum með aðildarumsóknina í marz 2015, sem nú hefur verið afhjúpaður rækilega.
Ein slík mistök má nefna frá fyrri tíð, en það var stefnumörkun um nýjan áfanga í útfærslu fiskveiðilögsögunnar fyrir þingkosningarnar 1971.“
Og Styrmir er þungorður í lokaorðum sínum:
„Afleiðing þess, sem nú er að gerast á Alþingi er að stórir hópar stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins treysta núverandi þingmönnum ekki lengur. Það er alvarlegt.“