Miðflokkurinn virðist vera að ná vopnum sínum

Miðflokkurinn er eini hástökkvarinn í Þjóðarpúlsi Gallup fyrir marsmánuð og virðist flokkurinn hafa náð vopnum sínum eftir Klaustursmálið.

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 25% fylgi líkt og í síðasta mánuði. Samfylkingin er næst stærsti flokkurinn með 15,9% fylgi, og fylgi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og Pírata mælist jafnt. 11,6%.  Fylgi Viðreisnar mælist nú 10,%, en Framsóknarflokkur og Miðflokkurinn mælast jafn stórir í þessari könnun með 9% fylgi, en Miðflokkurinn bætir við sig rúmlega tveimur prósentustigum milli mánaða, að því er fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins.

Flokkur fólksins, sem er nú með tvo þingmenn, kæmi ekki manni að ef þetta yrði niðurstaða kosninga, flokkurinn mælist með 3,7% fylgi.

Fylgið við Sósíalistaflokkinn mælist þrjú og hálft prósent.

Einnig var spurt um fylgi við ríkisstjórnina og mælist það nærri 48%, sem er svipað og mældist fyrir mánuði.