Misráðin væntingastjórnun valdið ómældum skaða

Hörður Ægisson viðskiptaritstjóri Fréttablaðsins.

Erlend staða þjóðarbúsins er því orðin ein sú besta í Evrópu og Seðlabankinn ræður yfir 700 milljarða gjaldeyrisforða sem hann getur beitt til að vinna gegn mögulegu gjaldeyrisútflæði. Þessi staða, ásamt þeirri staðreynd að skuldir fyrirtækja, heimila og ríkissjóðs eru afar lágar í sögulegu samhengi, gerir það að verkum að hagkerfið ætti að komast klakklaust í gegnum þær efnahagsþrengingar sem nú blasa við. Kjöraðstæður eru til að ná fram mjúkri lendingu og að óbreyttu ætti að vera hægt, sem er ekki í boði í mörgum okkar helstu viðskiptalöndum, að lækka vexti talsvert til að sporna við of djúpum samdrætti. Það yrði þá einsdæmi í hagsögunni.

Þetta segir Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðarins, í leiðara Fréttablaðsins í dag.

Hann beinir spjótum sínum, eins og oft áður, að verkalýðshreyfingunni í leiðaranum og segir:

„Fíllinn í herberginu, sem er ekki krónan eins og sumir halda fram hugsunarlaust, er vinnumarkaðurinn. Misráðin væntingastjórnun verkalýðshreyfingarinnar, sem framkallaði verkfallsaðgerðir gagnvart viðkvæmustu en í senn mikilvægustu atvinnugrein landsins, hefur valdið ómældum og tilgangslausum skaða.

Eftir margra mánaða hatrammar deilur er nú hins vegar útlit fyrir að kjarasamningar séu að nást. Sá tónn sem heyrist frá sumum leiðtogum stéttarfélaganna gefur til kynna að þar séu menn farnir að nálgast einhvers konar jarðtengingu. Því ber að fagna enda þótt það sé síðra ef til þess þurfti gjaldþrot flugfélags.

Verði samið um hóflegar launahækkanir munum við sjá vexti fara lækkandi. „Það er staðreynd að verkalýðshreyfingin ræður þessu,“ sagði Gylfi Zoega, hagfræðiprófessor og nefndarmaður í peningastefnunefnd Seðlabankans, í Silfri Egils í gær. Hann hefur auðvitað rétt fyrir sér. Valið er núna verkalýðshreyfingarinnar,“ skrifar Hörður Ægisson.