Sjálfstæðisflokkurinn þarf að fara í naflaskoðun og kjörnir fulltrúar hans þurfa að íhuga stöðu sína. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra kvaðst í stjórnmálaspjalli með Birni Inga Hrafnssyni, ritstjóra Viljans, á Vinnustofu Kjarvals síðdegis í gær, vera að gera einmitt það, heyra í flokksfólki um land allt og ákveða næstu skref.
Að hennar mati þarf að stokka upp allt skipulag flokksins og starfið og hefur ýmsar tillögur í þeim efnum. Hún útilokar ekki framboð til formanns eftir hvatningu þar um, skynjar skýrt ákall um breytingar og á von á harðri baráttu á Landsfundi.
Allt annar veruleiki sé fyrir sjálfstæðismenn að eiga í samstarfi við Svandísi Svavarsdóttur sem formann VG og helst myndi hún vilja sjá ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Viðreisnar eftir næstu kosningar. Slík stjórn gæti ráðist í meiriháttar kerfisbreytingar og náð miklum árangri, enda gæti hún náð saman um skýr pólitísk markmið.
Stjórnmálaspjallið er á dagskrá Vinnustofu Kjarval mánaðarlega í vetur. Umsjónarmaður er Björn Ingi Hrafnsson.