No borders samtökin: Hvít kynþáttahyggja ríkisvaldsins og „grípa verður til örþrifaráða“

„Við, No Borders styðjum þingpallamótmæli mánudagsins tvímælalaust. Grimm stefna ríkisstjórnar í útlendingamálum skapar slíka neyð og örvæntingu að grípa verður til örþrifaráða,“ segir í yfirlýsingu sem No borders samtökin (Engin landamæri) hafa sent frá sér.

„Á mánudag, 4. mars áttu sér stað mótmæli á þingpöllum Alþingis þar sem mótmælandi klifraði yfir þingpallana og kallaði til dómsmálaráðherra

Í gangi voru 1. umræður um nýtt útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra. Frumvarpið felur í sér gríðarlega skerðingu á réttindum fólks á flótta og einkennist af afmennskun og aukinni jaðarsetningu þess. Meðal annars snýst frumvarpið um:

Flóttafólk með „vernd” í öðru Evrópulandi hafi ENGAN möguleika á að mál þeirra verði skoðuð af íslenskum yfirvöldum.

Skilyrði um fjölskyldusameiningar verði hert og undanþáguregla afnumin.

Kærunefnd útlendingamála minnkuð úr 7 nefndarmönnum í 3.

Mótmælandinn er flóttamaður og tilheyrir hópi fólks sem var vísað á götuna síðastliðinn ágúst. Hann er nú búsettur í neyðarskýli Rauða krossins. Þar dvelur á þriðja tug manns, gjörsamlega réttindalaust og án aðgengis að heilbrigðisþjónustu. Öryggismyndavélar eru á öllum stöðum og fylgjast með hverju fótmáli. Sturtuaðstaðan er í gámum fyrir utan húsið. Þeim ber skylda að yfirgefa húsnæðið frá kl. 10 til kl 17 þó þau hafi í engin hús að venda.

Börnum er meinað um að dvelja í neyðarskýlinu og hefur móður á flótta verið vísað á götuna ásamt 18 mánaða gömlu barni sínu.

Nú áformar ríkisstjórnin einnig að koma á laggirnar fangabúðum fyrir fólk á flótta þar sem meðal annars börn verða færð í varðhald. Þessi fólskulegu áform ríkisvaldsins eru knúin áfram af kerfislægum rasisma og hvítri yfirburðahyggju. Þeirri hugmynd þrælahaldsins að hvít yfirstétt geti hneppt brúnt eða svart fólk í fjötra að eigin geðþótta.

Yfir þessum hópi, auk alls flóttafólks á Íslandi, vofir nú mikil hætta um enn frekari skerðingu á réttindum þeirra, verði frumvarpið samþykkt,“ segir þar ennfremur.