Norðurlöndin taki aukið forystuhlutverk gegn loftslagsvánni

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Mary Robinson, fyrrverandi forseti Írlands, að loknum fundi ásamt Höllu Tómasdóttur, forstjóra B Team.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fundaði með Mary Robinson, fyrrverandi forseta Írlands, sem einnig hefur verið erindreki Sameinuðu þjóðanna á sviði mannréttindamála og baráttukona fyrir loftslagsréttlæti. 

Þær ræddu um stöðuna í loftslagsmálum og þá brýnu nauðsyn að ríki heims taki höndum saman um aðgerðir til að stöðva þá uggvænlegu þróun sem stefnir í ef ekki tekst að ná tökum á hlýnun jarðar.

Mary afhenti forsætisráðherra bréf frá yfir tuttugu alþjóðlegum leiðtogum úr viðskiptum, verkalýðshreyfingu og þriðja geiranum því til stuðnings að Norðurlöndin taki aukið forystuhlutverk í baráttunni við hamfarahlýnun og lýsi yfir neyðarástandi, en loftslagsmál eru eitt af aðalefnum fundarins að frumkvæði Íslands, sem fer nú með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni.

Með forsætisráðherra og Robinson á fundinum var Halla Tómasdóttir, forstjóri B Team og fv. forsetaframbjóðandi.